Mál nr. S-206/2026
Birt: 14.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um bókhald.
Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um bókhald sem leysa af hólmi lög nr. 145/1994, um bókhald. Gildandi lög voru sett árið 1994 og hefur umhverfi bókhalds tekið verulegum breytingum frá þeim tíma. Færsla og varðveisla bókhalds fer nú að meginstefnu fram með rafrænum hætti, bókhaldsgögn eru í auknum mæli varðveitt í skýjaþjónustu og notkun rafrænna reikninga, sjálfvirkra gagnaskipta og þjónustu þriðja aðila hefur aukist.
Markmið frumvarpsins er að færa ákvæði bókhaldslaga til samræmis við breytta framkvæmd og tækniþróun á sviði bókhalds. Lagt er til að meginreglur um rafrænt bókhald, sem nú er að hluta til mælt fyrir um í reglugerð nr. 505/2013, verði lögfestar og að orðalag og uppbygging laganna taki mið af því að bókhald og bókhaldsgögn eru almennt á rafrænu formi. Jafnframt er lagt til að skýrðar verði reglur um ábyrgð á bókhaldi, færslu og leiðréttingu bókhaldsfærslna, bókhaldsgögn, varðveislu og aðgengi að þeim og gerð ársreikninga þeirra aðila sem ekki falla undir lög um ársreikninga.
Frumvarpið er í samræmi við áherslur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja, stafvæðingu og aukna skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.
Frumvarpið felur ekki í sér innleiðingu EES-gerða en við undirbúning þess var horft til laga um bókhald í nágrannalöndum Íslands.
Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um frumvarpsdrögin.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa viðskipta og markaða
atrn@atrn.is