Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 13.–27.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-204/2026

Birt: 13.10.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins)

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins).

Nánari upplýsingar

Frumvarpið byggist einkum á reynslu af framkvæmd laganna frá gildistöku þeirra 1. janúar 2026 og miðar að því að skýra og bæta afmörkuð atriði í lagaumgjörð og framkvæmd kílómetragjaldsins.

Með frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á undanþágum frá kílómetragjaldi, þar á meðal vegna ökutækja björgunarsveita, dráttarvéla og eftirvagna þeirra sem notuð eru við landbúnaðarstarfsemi og tiltekinna sérhæfðra ökutækja. Jafnframt eru lagðar til breytingar á reglum um tímabundinn flutning ökutækja úr landi og skráningu á stöðu akstursmælis. Þá er lagt til að auðvelda leiðréttingu álagningar þegar hún hefur augljóslega byggst á röngum forsendum og að færa gjalddaga kílómetragjalds frá fyrsta degi mánaðar til fimmta dags hans.

Einnig er lagt til að skýra réttaráhrif ógreidds kílómetragjalds við eigendaskipti og aðalskoðun, skattalega meðferð gjaldsins samkvæmt lögum um virðisaukaskatt og tekjuskatt og réttarstöðu ökutækja sem voru erlendis við gildistöku þeirra.

Óskað er eftir umsögnum og ábendingum um fyrirliggjandi drög.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa skattamála

fjr@fjr.is