Til umsagnar
12.–22.10.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-203/2026
Birt: 12.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Lagt er til að innleiða EES-reglugerð um valfrjálsa merkingu fyrir evrópsk græn skuldabréf, ráðstöfun andvirðis til umhverfissjálfbærrar starfsemi, upplýsingagjöf útgefenda, ytri úttektir og eftirlit.
Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð (ESB) 2023/2631 um evrópsk græn skuldabréf verði lögfest hér á landi.
Reglugerðin setur sameiginlegar kröfur til útgefenda sem kjósa að nota merkinguna „evrópsk græn skuldabréf“ eða „EuGB“. Kröfurnar varða meðal annars ráðstöfun andvirðis skuldabréfanna til umhverfissjálfbærrar starfsemi, upplýsingagjöf til fjárfesta og óháðar úttektir. Útgefendur skulu birta árlegar skýrslur um ráðstöfun andvirðisins og skýrslu um umhverfisáhrif eftir að því hefur verið ráðstafað að fullu. Reglugerðin kveður einnig á um skráningu og eftirlit með ytri úttektaraðilum.
Reglugerðin kveður einnig á um valkvæð sniðmát fyrir birtingu upplýsinga vegna skuldabréfa sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og vegna sjálfbærnitengdra skuldabréfa. EGBR gerir þannig ráð fyrir ólíkum grænum útgáfu- og fjárfestingarkostum.
Áform um frumvarp þetta voru birt í Samráðsgátt 12 desember 2025 og engar athugasemdir bárust (Mál nr. S-250/2025).
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is