Til umsagnar
9.–23.10.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-199/2026
Birt: 9.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Áformað er að leggja fram frumvarp sem kveður á um að hámarkslánstími verðtryggðra fasteignalána til neytenda verði 25 ár og takmarki jafnframt veitingu lána með sambærilegum greiðsluferli.
Áformað er að leggja fram frumvarp sem mælir fyrir um að hámarkslánstími verðtryggðra fasteignalána til neytenda verði 25 ár og takmarkar jafnframt veitingu annarra lána með svipaðan greiðsluferil og lengri verðtryggð lán. Áformað er að heimilt verði að veita undanþágur frá hámarkinu vegna ákveðins hundraðshluta veittra lána.
Verðtryggð fasteignalán eru þau einu sem njóta nokkurrar útbreiðslu meðal neytenda hér á landi þar sem kostnaður er reglubundið lagður við höfuðstól þannig að eftirstöðvar fara hækkandi á hluta lánstímans. 25 ára hámarkslánstími tryggir að höfuðstóll verðtryggðra lána hækkar ekki að nafnvirði á neinu 12 mánaða tímabili á lánstímanum miðað við meðalvexti nýrra verðtryggðra lána hjá bönkum og lífeyrissjóðum undanfarin 10 ár (3,5%) þegar verðbólga er við verðbólgumarkmið (2,5%). 25 ára hámarkslánstími er einnig í samræmi við tillögur sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar á neytendalánum og frumvörp sem lögð voru fram á 145. og 151. löggjafarþing. Um frumvörpin og niðurstöður sérfræðingahópsins er fjallað undir liðnum A. Tilefni í áformaskjalinu.
Til þess að styðja við markmið lagasetningarinnar er einnig áformað að frumvarpið muni takmarka veitingu lána sem hafa svipaða eiginleika og verðtryggð lán til lengri tíma en 25 ára. Í því skyni er áformað að frumvarpið mæli fyrir um hámark á því hversu mikill kostnaður, annar en verðbætur, megi með reglubundnum hætti leggjast við höfuðstól fasteignalána til neytenda. Með því er átt við að við lánveitingu verði skilmálum hagað þannig að nafnvirði eftirstöðva hækki ekki umfram ákveðið hlutfall á hverju ári lánstíma vegna uppsöfnunar vaxta eða annars kostnaðar á höfuðstól.
Áformað er að lögin taki gildi 1. janúar 2027.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa fjármálamarkaða
fjr@fjr.is