Til umsagnar
8.–25.10.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-198/2026
Birt: 8.10.2026
Fjöldi umsagna: 2
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Lagðar eru til breytingar á lögreglulögum nr. 90/1996 og fleiri lögum vegna skipulagsbreytinga lögreglunnar sem hafa það meginmarkmið að styrkja og efla lögregluna í heild.
Tilefni frumvarpsins er að laga skipulag lögreglunnar að breyttu umhverfi og skapa sterkari faglegar forsendur fyrir löggæslu um land allt. Lögreglan stendur frammi fyrir nýjum og krefjandi verkefnum, m.a. vegna aukinnar skipulagðrar brotastarfsemi, netbrota, fjölþáttaógna og almannavarna, sem krefjast sérhæfðrar þekkingar, aukinnar samhæfingar og faglegrar samlegðar ásamt skilvirkri nýtingu mannafla og fjármuna. Með frumvarpinu eru lagðar til umfangsmiklar breytingar sem miða að því að styrkja faglega og rekstrarlega getu lögreglunnar, einfalda stjórnskipulag og skýra verkaskiptingu innan lögreglunnar, sem og að efla getu hennar til að sinna verkefnum sem í auknum mæli kalla á sérhæfingu, samhæfingu og samstarf. Um er að ræða umfangsmestu breytingarnar á skipulagi lögreglunnar í rúman áratug.
Samkvæmt núgildandi lögreglulögum skiptist landið í níu lögregluumdæmi sem hvert um sig heyrir undir sjálfstæðan lögreglustjóra. Embættin eru mjög ólík að stærð, mannafla og verkefnasamsetningu. Fámennari embætti þurfa þó, rétt eins og þau stærri, að viðhalda ákveðinni grunngetu til löggæslu, rannsókna, viðbragðs og stjórnunar.
Lögreglan gegnir mikilvægu hlutverki í daglegri þjónustu við almenning um allt land, m.a. með útkallsþjónustu, samfélagslöggæslu, forvarnastarfi og samstarfi við sveitarfélög og aðra opinbera aðila. Nauðsynlegt er að skipulag lögreglunnar styðji bæði við þessa staðbundnu þjónustu og getu hennar til að sinna umfangsmiklum og sérhæfðum verkefnum.
Lagt er til að núverandi níu lögregluembætti verði sameinuð í þrjú embætti. Með þessari skipan verða til þrjú staðbundin embætti lögreglu með meiri faglega, rekstrarlega og stjórnunarlega burði. Stærri embætti skapa aukið svigrúm til að jafna verkefnaálag, færa mannafla tímabundið eftir þörfum og byggja upp sérhæfð fagteymi. Þau skapa jafnframt betri skilyrði fyrir þekkingaruppbyggingu og faglegu samstarfi og styrkja rannsóknargetu hvers umdæmis vegna flókinna og umfangsmikilla mála.
Með skipulagsbreytingunum skapast jafnframt betri forsendur til að samnýta stoðþjónustu, samræma verklag og innkaup, einfalda stjórnun og nýta sameiginleg kerfi. Markmiðið er að draga eftir föngum úr tvíverknaði og skapa með tímanum aukið svigrúm til að einblína á kjarnaverkefni lögreglu.
Með breytingunum verður hvorki starfsfólki lögreglu né starfsstöðvum fækkað. Markmiðið er að styrkja og efla lögregluna í heild með aukinni faglegri getu, umbótum og skilvirkni við löggæslu.
Til að styðja við dreifða stjórnun er jafnframt lagt til að fleiri en einn aðstoðarlögreglustjóri verði skipaðir við hvert embætti, til viðbótar stjórnendateymi lögregluembættanna. Þannig verður unnt að dreifa stjórnunarlegri og faglegri ábyrgð innan hinna stærri umdæma og staðsetja stjórnendur á fleiri en einum stað.
Aðeins sá aðstoðarlögreglustjóri sem gegnir stöðu staðgengils lögreglustjóra þarf að uppfylla sérstök skilyrði um lögfræðimenntun, en aðrir aðstoðarlögreglustjórar geta komið úr röðum lögreglumenntaðra stjórnenda.
Sérstök áhersla er lögð á að landsbyggðarembættin tvö verði nægilega öflug til að byggja upp eigin sérhæfingu, rannsóknargetu og stjórnunarlega getu. Með því er leitast við að dreifa ábyrgð, sérþekkingu og störfum innan lögreglu.
Samhliða breytingum á lögregluumdæmunum er lagt til að hlutverk ríkislögreglustjóra verði skýrt betur. Embættinu verður áfram ætlað að sinna landsbundinni forystu, samhæfingu og sameiginlegri þjónustu lögreglunnar, meðal annars á sviði innkaupa, upplýsingamála og tækni, greininga, alþjóðasamstarfs, öryggismála og samræmingar. Dagleg stjórn löggæslu og ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan hvers umdæmis verður áfram hjá þremur lögreglustjórum, ásamt aðstoðarlögreglustjórum og öðrum stjórnendum.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að tiltekin sérhæfð verkefni verði unnin fyrir lögregluna í heild hjá einu embætti. Á það meðal annars við um verkefni þar sem þörf er á sérstökum búnaði, aðstöðu, reynslu eða nægilegu verkefnamagni til að viðhalda sérþekkingu. Jafnframt er gert ráð fyrir að ráðherra geti falið einu eða fleiri lögregluembættum önnur afmörkuð verkefni á landsvísu. Við slíka ákvörðun er sérstaklega horft til þess að landsbyggðarembættin tvö geti tekið að sér landsbundin verkefni og byggt þar með upp sérhæfingu og störf sem þjóna lögreglunni í heild.
Gert er ráð fyrir að hin nýju lögregluembætti taki til starfa 1. janúar 2028. Frá samþykkt laga og fram að gildistöku þeirra verður unnið að stofnun nýrra lögregluembætta. Starfsfólk núverandi lögregluembætta færist til hinna nýju embætta við gildistöku laganna.
Í heild er með frumvarpinu leitast við að sameina kosti stærri og öflugri rekstrareininga annars vegar og áframhaldandi staðbundinnar löggæslu hins vegar. Markmiðið er að lögreglan hafi aukna getu til sérhæfingar og samvinnu, geti nýtt mannafla og sérþekkingu með sveigjanlegri hætti og starfað í auknum mæli sem ein heild þegar verkefni kalla á það, án þess að ábyrgð á daglegri löggæslu eða staðbundin nærvera lögreglu breytist.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa löggæslumála
dmr@dmr.is