Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 7.–21.10.2026

2

Í vinnslu

  • 22.10.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-197/2026

Birt: 7.10.2026

Fjöldi umsagna: 7

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009 (lagaumgjörð, skilgreiningar o.fl.)

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 (lagaumgjörð, skilgreiningar o.fl.).

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er lagt til að lagaumgjörð skattalegs stuðnings við rannsóknar- og þróunarverkefni fyrirtækja verði endurskoðuð. Markmiðið er að skýra skilyrði stuðningsins, auka fyrirsjáanleika við framkvæmd og beina honum að rannsóknar- og þróunarstarfi fyrirtækja.

Helstu breytingar lúta að heiti og gildissviði laganna, skilgreiningum á rannsóknar- og þróunarverkefnum og skilyrðum fyrir staðfestingu þeirra. Þá eru lagðar til breytingar á umsóknarfrestum, gildistíma staðfestingar og málsmeðferð hjá Rannís, meðal annars með heimild til endurmats á synjun um að verkefni teljist rannsóknar- eða þróunarverkefni.

Jafnframt er lagt til að afmörkun styrkhæfs kostnaðar verði breytt. Áhersla er lögð á launakostnað vegna beinnar vinnu við verkefni, settar reglur um aðkeypta rannsóknar- og þróunarvinnu og heimilað fast álag á styrkhæfan launakostnað vegna annars kostnaðar við verkefni. Ekki eru lagðar til breytingar á hlutföllum skattfrádráttar eða heildarhámarki þess kostnaðar sem getur myndað stofn til skattfrádráttar.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa skattamála

fjr@fjr.is