Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 6.–20.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-196/2026

Birt: 6.10.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tekjuskattur, tollar o.fl.)

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tekjuskattur, tollar o.fl.).

Nánari upplýsingar

Frumvarpið hefur að geyma tillögur að breytingum á skatta- og tollalöggjöf. Tillögurnar eru af ólíkum toga en eiga það sameiginlegt að miða að því að skýra og einfalda gildandi reglur, bæta framkvæmd þeirra og tryggja að löggjöfin endurspegli gildandi rétt og stjórnsýsluframkvæmd.

Breytingarnar eru jafnframt til þess fallnar að auka fyrirsjáanleika og samræmi við beitingu reglnanna, draga úr óþarfa álitaefnum og auðvelda bæði stjórnvöldum og þeim sem reglurnar taka til að átta sig á réttindum sínum og skyldum. Þá er með einstökum breytingum brugðist við annmörkum sem komið hafa í ljós í framkvæmd, lokað glufum í regluverkinu og tryggt að ákvæði laganna nái með skýrari hætti til þeirra tilvika sem þeim er ætlað að taka til.

Tillögurnar fela ýmist í sér efnislegar breytingar á skattalegri meðferð, skýrari afmörkun gildandi reglna eða lagfæringar á ákvæðum sem hafa orðið úrelt vegna síðari lagabreytinga eða breyttrar stjórnsýslu. Í heild miða þær að skýrara, einfaldara og samræmdara lagaumhverfi á þeim sviðum sem frumvarpið tekur til.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa skattamála

fjr@fjr.is