Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 6.–20.10.2026

2

Í vinnslu

  • 21.10.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-195/2026

Birt: 6.10.2026

Fjöldi umsagna: 27

Drög að frumvarpi til laga

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framhaldsskólastig

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla (skipulag náms og námslok)

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008.

Nánari upplýsingar

Framhaldsskólastigið hefur tekið töluverðum breytingum frá gildistöku laga um framhaldsskóla árið 2008. Nemendahópurinn er fjölbreyttari, nýjar og breyttar þarfir hafa komið fram og tækniþróun hefur haft áhrif á skipulag og framkvæmd náms. Markmiðið með þessum breytingum er að fleiri ungmenni finni nám við hæfi og fái þann stuðning sem þau þurfa til að ná árangri. Framhaldsskólinn þarf að geta mætt ólíkum þörfum nemenda og boðið raunhæfar leiðir áfram, bæði til frekara náms og út í atvinnulífið. Það er mikið í húfi að ungmenni upplifi að hæfileikar þeirra fái að njóta sín og að þau eigi framtíð innan menntakerfisins.

Í fyrsta lagi viljum við styrkja hagnýtar námsleiðir og gefa fjölbreyttum hæfileikum meira vægi. Lagt er til að skýra inntak og möguleika náms til framhaldsskólaprófs og styðja þannig við þróun námsleiða fyrir nemendur á fræðsluskyldualdri sem þurfa hagnýtara námsumhverfi, aukinn stuðning eða aðra námstilhögun. Áréttað verði að námið geti undirbúið nemendur fyrir þátttöku í atvinnulífi eða áframhaldandi nám á framhaldsskólastigi. Það geti verið hagnýtt og starfstengt, skipulagt í samstarfi við atvinnulífið og byggt á styrkleikum nemenda. Með þessu viljum við draga úr brotthvarfi nemenda, skapa fleiri ungmennum tækifæri til að finna tilgang með náminu, öðlast sjálfstraust og ljúka prófi sem nýtist þeim á næstu skrefum í lífinu.

Í öðru lagi viljum við tryggja að sveigjanleika í námi fylgi skýrar gæðakröfur og ábyrgð. Lagt er til að nám á framhaldsskólastigi fari að meginreglu fram sem staðnám. Þar skiptir daglegt samband við kennara, stuðningur og þátttaka í skólasamfélaginu miklu máli. Jafnframt verði framhaldsskólum heimilt að bjóða nám að hluta eða öllu leyti í fjarnámi þegar það samræmist eðli, markmiðum og hæfniviðmiðum námsins. Fjarnám getur opnað mikilvæga möguleika, en nemendur eiga sama rétt á gæðum náms og kennslu óháð því hvernig náminu er háttað. Einnig er lagt til að nemandi verði aðeins innritaður á námsbraut í einum framhaldsskóla á hverjum tíma og að nám við annan skóla verði háð samþykki þess skóla. Þannig verði skýrara hver heldur utan um námsframvindu nemandans og samhæfingu námsins.

Í þriðja lagi viljum við treysta umgjörð náms fyrir fatlaða nemendur og auðvelda skólum að mæta þörfum þeirra. Lagt er til að framhaldsskólar fái almenna heimild til að bjóða einstaklingsmiðaðar námsbrautir fyrir fatlaða nemendur sem þurfa heildstæða aðlögun námsumhverfis og sérhæfðan stuðning. Rekstur slíkra brauta verði því ekki lengur háður sérstökum samningi við ráðherra. Með þessu verði lagaumgjörðin færð betur til samræmis við framkvæmd og skólum skapaður skýrari grundvöllur til að skipuleggja námið. Hér er jafnræði í menntun í forgrunni þar sem fatlaðir nemendur þurfa að fá tækifæri til að þroska hæfileika sína, efla sjálfstæði sitt og búa sig undir lífið að loknum framhaldsskóla.

Ráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarpsdrögin og hvetur sérstaklega nemendur á framhaldsskólastigi, foreldra og forsjáraðila og aðra sem málið varðar til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (8)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa framhaldsskóla og framhaldsfræðslu

mrn@mrn.is