Til umsagnar
6.–20.10.2026
Í vinnslu
21.10.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-194/2026
Birt: 6.10.2026
Fjöldi umsagna: 19
Drög að frumvarpi til laga
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Örorka og málefni fatlaðs fólks
Félags- og húsnæðismálaráðherra kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.
Frumvarp þetta er samið í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og felur í sér breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018. Reynslan af framkvæmd laganna á undanförnum árum, samhliða aukinni eftirspurn eftir stuðningi, hefur hins vegar leitt í ljós að þörf er á að endurskoða og skýra ýmis ákvæði laganna til að tryggja að markmið þeirra nái fram að ganga.
Tilefni þessa frumvarps má rekja til umfangsmikillar greiningar- og stefnumótunarvinnu sem unnin hefur verið á undanförnum árum í samstarfi ríkis, sveitarfélaga, notenda og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks. Unnar hafa verið skýrslur og tillögur þar sem gerð hefur verið grein fyrir þeim atriðum sem talið er nauðsynlegt að endurskoða eða breyta í gildandi lögum. Hér ber að nefna skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, frá 2022, Áfangaskýrslu II - Kostnaðar- og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk, frá september 2024, og skýrslu starfshóps um húsnæði við hæfi, Heimili sem styður sjálfstætt líf, frá maí 2026. Þá var gert samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga í desember 2023 um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk á grundvelli svonefndrar Áfangaskýrslu I, en ákvæði samkomulagsins gera ráð fyrir endurskoðun á lögunum.
Með frumvarpi þessu er lagt til að ýmsum þeirra tillagna, sem fram hafa komið í áðurnefndum skýrslum, verði hrint í framkvæmd. Frumvarpinu eru þannig ætlað að ná fram fjórum meginmarkmiðum, þ.e. að:
1. Auka gæði, jafnræði og stöðugleika í þjónustu, m.a. með lögfestingu lágmarksstærðar þjónustusvæða og samræmdra staðlaðra matsaðferða á umfangi stuðningsþarfa á landsvísu.
2. Styrkja réttindi og sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks í húsnæðismálum.
3. Efla réttindi fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra með þjónustu í nærumhverfi, banni við gjaldtöku fyrir frístundaþjónustu skv. 16. gr. laganna og, eftir því sem við verður komið, vali milli almenns tómstunda- og félagsstarfs og sértæks frístundastarfs.
4. Bæta stjórnsýslu, m.a. með skýrum ákvæðum um meðferð upplýsinga ásamt því að samræma hæfisskilyrði starfsfólks og rekstrarleyfisveitingar að barnaverndarlögum og tryggja virkara samráð við notendur og hagsmunasamtök fatlaðs fólks.
Ráðuneytið óskar eftir umsögnum um efni frumvarpsins.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa félagsmála
frn@frn.is