Til umsagnar
7.–21.10.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-193/2026
Birt: 7.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Annað
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til umsagnar drög að ákvæði til bráðabirgða í aðalnámskrá grunnskóla.
Ákvæðið gildir um einkunnagjöf og gerð vitnisburðar við brautskráningu úr grunnskóla skólaárið 2026-2027 og kemur í stað A-D matskvarða og matsviðmiða í 10. bekk í köflum 19-26.
Breytingin er liður í heildarendurskoðun á námsmati í grunnskólum og byggir á niðurstöðum samráðs um áform sem kynnt voru í Samráðsgátt stjórnvalda síðastliðið sumar. Með bráðabirgðaákvæðinu er brugðist við ákalli úr skólasamfélaginu um skýrari, einfaldari og samræmdari einkunnagjöf og gerð vitnisburðar við brautskráningu úr grunnskóla.
Í ákvæði til bráðabirgða eru grunnskólar hvattir til að nota talnakvarðann 1-10 við námsmat á skólaárinu en að einkunnir 4-10 skuli notaðar við einkunnagjöf og gerð vitnisburðar við brautskráningu úr grunnskóla. Gefa skal einkunnir 4-10 fyrir flokka hæfniviðmiða allra greinasviða eins og þau eru skilgreind í köflum 19-26.
Gefa skal lokaeinkunn greinasviðs við brautskráningu úr grunnskóla sem er reiknuð sem vegið meðaltal lokaeinkunna fyrir einstaka flokka í samræmi við útfærslu á námsmati í skólanámskrá viðkomandi grunnskóla. Um námsmat nemanda sem stundar nám samkvæmt einstaklingsnámskrá og gerð vitnisburðar fer áfram samkvæmt kafla 9.7 í aðalnámskrá.
Í ákvæðinu er einnig kveðið á um námundun lokaeinkunna og skráningu námsmats á vitnisburðarskírteini.
Þá kemur fram í ákvæðinu að grunnskólar skulu birta endurskoðaða skólanámskrá eigi síðar en 10. janúar 2027. Þar er vægi hæfniviðmiða við brautskráningu úr grunnskóla tilgreint í samræmi við leiðbeinandi vægi sem mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gefið út fyrir skólaárið 2026-2027.
Í stað sérstakra matsviðmiða fyrir hverja einkunn verða hæfniviðmið aðalnámskrár lögð til grundvallar við lokamat:
• Einkunnin 4 merkir að hæfniviðmiðum flokksins hafi ekki verið náð. Skóli gerir þá sérstaka grein fyrir hæfni viðkomandi nemanda.
• Einkunnir 5 og 6 lýsa stigvaxandi hæfni á leið að því að hæfniviðmiðum flokksins sé náð.
• Einkunnin 7 merkir að hæfniviðmiðum flokksins hafi verið náð.
• Einkunnir 8 til 10 lýsa stigvaxandi meiri dýpt, öryggi, sjálfstæði og beitingu þeirrar hæfni sem hæfniviðmið flokksins ná yfir.
Markmið breytingarinnar er að stuðla að auknu jafnræði nemenda, óháð því hvaða skóla þeir sækja, tryggja samfellu í námi milli skólastiga og bæta upplýsingagjöf til nemenda og foreldra. Mennta- og barnamálaráðuneytið fagnar öllu samráði um málefnið. Sérstaklega er óskað eftir umsögnum um framkvæmd námsmatsins, notkun talnakvarðans, reglur um námundun og upplýsingagjöf á vitnisburðarskírteini.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa skóla- og íþrótta
mrn@mrn.is