Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 6.–21.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-192/2026

Birt: 6.10.2026

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Áform um innleiðingu EES-reglna um tilflutning úrgangs

Málsefni

Áformuð er innleiðing reglugerðar (ESB) 2024/1157 um tilflutning úrgangs, sem tekur til flutnings úrgangs á milli landa.

Nánari upplýsingar

Áformin snúa að því að gera breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, sem nauðsynlegar eru til að innleiða í landsrétt reglugerð (ESB) 2024/1157 um tilflutning úrgangs. Reglugerðin leysir af hólmi eldri reglugerð ESB um sama efni og tók hún að mestu leyti gildi í aðildarríkjum ESB 21. maí 2026. Reglugerðin tekur að fullu gildi 21. maí 2027 og um leið fellur eldri reglugerð, sem innleidd er hér á landi, alfarið úr gildi innan ESB.

Með lagasetningunni er því ætlunin að lögfesta sömu reglur um flutning úrgangs til og frá Íslandi og gilda í öðrum ríkjum á EES-svæðinu. Í því felast meðal annars breytingar sem ætlað er að stafvæða og einfalda stjórnsýslu og auka yfirsýn, samræmingu og skilvirkni. Mikilvægt er að íslenskir aðilar sem flytja úrgang á milli landa njóti fulls jafnræðis á við sambærilega aðila í öðrum ríkjum á svæðinu, auk þess að tryggja hnökralausan útflutning á úrgangi sem ekki er mögulegt að meðhöndla hér á landi.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (14)

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfisgæða

urn@urn.is