Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.–16.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-190/2026

Birt: 2.10.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Húsnæðis- og skipulagsmál

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010

Málsefni

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010.

Nánari upplýsingar

Ráðuneytið hefur unnið að greiningu á framkvæmd skipulagslöggjafarinnar og átt víðtækt samráð við hagaðila um húsnæðis- og skipulagsmál, m.a. á vinnustofum og í tengslum við stefnumótunarvinnu í málaflokknum.

Hefur sú vinna og reynsla af framkvæmd laganna sýnt að þörf er á að endurskoða skipulagslöggjöfina og aðlaga hana að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem það á við. Í frumvarpinu eru því gerðar tillögur til breytinga á skipulagslögum til að mæta framangreindu.

Lagt er til að einfalda, skýra og samræma ákvæði skipulagslaga um birtingu upplýsinga og auglýsinga í skipulagsmálum, m.a. þannig að Skipulagsgátt verði vettvangur fyrir formlega birtingu gagna og móttöku athugasemda og umsagna.

Í frumvarpinu er einnig lögð til málsmeðferð varðandi breytingar á gildandi svæðisskipulagi, úrlausn ágreinings um breytingar á svæðisskipulagi og heimild til að fella niður svæðisskipulag að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

Þá eru lagðar til breytingar til að einfalda tiltekna þætti málsmeðferðar við gerð og breytingar skipulagsáætlana og til að tryggja skilvirkari og fyrirsjáanlegri meðferð mála án þess að dregið sé úr samráði, faglegum undirbúningi eða réttaröryggi. Breytingarnar eru liður í áframhaldandi þróun skipulagslöggjafarinnar og miða að því að tryggja að hún styðji áfram við markmið um sjálfbæra þróun, vandaða skipulagsgerð og góða stjórnsýslu.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála

frn@frn.is