Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 1.–15.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-189/2026

Birt: 1.10.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Dvalarleyfi - Frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga

Málsefni

Með frumvarpinu er lögð til heildarendurskoðun á V. -X. kafla laganna sem fjalla um útgáfu og skilyrði dvalarleyfa. Samhliða því eru gerðar nauðsynlegar breytingar á öðrum lögum í bandormi.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á ákvæðum laga um útlendinga um dvalarleyfi fyrir ríkisborgara ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins. Markmið þess er einkum að færa íslenskt regluverk nær því sem gildir á hinum Norðurlöndunum, styrkja auðkenningu umsækjenda og varnir gegn misnotkun kerfisins, skýra skilyrði dvalarleyfa og endurnýjunar þeirra og bæta réttarstöðu þolenda mansals og alvarlegra brota á vinnumarkaði.

Lagt er til að auðkenni umsækjanda verði sjálfstætt skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis og að aflað verði andlitsmyndar og fingrafara við umsókn í stað þess að það sé gert við komu útlendings til landsins. Þá verði við tiltekna leyfisflokka lagt einstaklingsbundið mat á hvort líklegt sé að umsækjandi yfirgefi landið að lögmætri dvöl lokinni. Jafnframt eru skilyrði fyrir endurnýjun dvalarleyfa skýrð og samræmd og heimildir stjórnvalda til upplýsingaöflunar vegna eftirlits með skilyrðum styrktar.

Veigamiklar breytingar eru lagðar til á skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis. Almennt búsetuskilyrði lengist úr fjórum árum í sex, en sérfræðingar geta áfram fengið ótímabundið leyfi eftir fjögur ár að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum. Þá bætist við skilyrði um að umsækjandi sé ekki í vanskilum vegna skatta, opinberra gjalda eða sekta. Jafnframt er lagt til að handhafar dvalarleyfa vegna alþjóðlegrar verndar og mannúðarsjónarmiða verði ekki lengur undanþegnir almennu framfærsluskilyrði við umsókn um ótímabundið dvalarleyfi.

Reglur um fjölskyldusameiningu eru endurskoðaðar. Foreldrar 67 ára og eldri falla ekki lengur undir almenna skilgreiningu nánustu aðstandenda en geta sótt um sérstakt dvalarleyfi að uppfylltum afmörkuðum skilyrðum, m.a. um knýjandi ástæður, húsnæði og framfærslu. Þá er lagt til húsnæðisskilyrði við fjölskyldusameiningu og skýrari ákvæði um framfærslu.

Lagt er til að aldursskilyrði maka og sambúðarmaka verði almennt 24 ár, með tilteknum undanþágum, og að lágmarkstími sambúðar verði lengdur úr einu ári í tvö ár. Markmiðið er m.a. að draga úr hættu á nauðungar- og málamyndahjúskap og færa íslenskar reglur nær norrænu regluverki.

Frumvarpið styrkir jafnframt réttarstöðu þolenda. Lagt er til nýtt tímabundið dvalarleyfi, til allt að tólf mánaða, fyrir einstakling sem hefur sætt misneytingu eða alvarlegu broti á vinnumarkaði, svo honum gefist svigrúm til að leita nýs starfs og leita réttar síns. Þá er tryggt að dvöl á grundvelli leyfis vegna mansals rjúfi ekki ávinnslu til ótímabundins dvalarleyfis. Orðalag ákvæða um mansal er jafnframt fært til þolendamiðaðra horfs.

Dvalarleyfi vegna vistráðningar (au pair) fyrir ríkisborgara ríkja utan EES er fellt brott. Þá er lagt til sérstakt dvalarleyfi fyrir þátttakendur í alþjóðlegri þróunarsamvinnu íslenskra stjórnvalda. Einnig eru gerðar breytingar til einföldunar og samræmingar, m.a. með skýrari reglugerðarheimildum og fækkun opinna undanþáguheimilda.

Loks felur frumvarpið í sér breytingar á reglum um dvalarskírteini aðstandenda EES-borgara og vinnslu lífkennaupplýsinga vegna innleiðingar EES-reglna um öryggi skilríkja. Réttur EES- og EFTA-borgara til dvalar og atvinnu hér á landi breytist ekki. Frumvarpið tekur heldur ekki til reglna um veitingu alþjóðlegrar verndar.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa alþjóðamála

dmr@dmr.is