Til umsagnar
30.9.–14.10.2026
Í vinnslu
15.–14.10.2026
Samráði lokið
15.10.2026
Mál nr. S-187/2026
Birt: 30.9.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust.
Lagt er til að innleiða tvær EES-reglugerðir um lánastofnanir: önnur varðar TLAC-staðla og tvítalningu fjármagns, hin tímabundna aðlögun eiginfjárkrafna vegna markaðsáhættu til ársloka 2029
Lagt er til að innleiddar verði tvær EES-reglugerðir um kröfur til lánastofnana, önnur að hluta og hin í heild. Annarri gerðinni er ætlað að samræma reglur Evrópska efnahagssvæðisins við alþjóðlega staðla um tapþolsgetu kerfislega mikilvægra banka á alþjóðavísu (TLAC) og setur reglur til að koma í veg fyrir tvítalningu fjármagns. Hin gerðin mælir fyrir um tímabundna aðlögun á útreikningi eiginfjárkrafna vegna markaðsáhættu þannig að eiginfjárkröfur verði áfram sambærilegar því sem myndi leiða af gildandi reglum til ársloka 2029.
Sameiginlega EES-nefndin ákvað þann 30. apríl 2026, með ákvörðun nr. 140/2026, að taka upp í EES-samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2036 frá 19. október 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 og tilskipun 2014/59/ESB að því er varðar varfærnismeðferð á kerfislega mikilvægum stofnunum á alþjóðavísu með margvíða skilastefnu og aðferðir fyrir óbeina áskrift að gerningum sem eru hæfir til að uppfylla lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar. Gert er ráð fyrir að EES-nefndin muni innan skamms ákveða að taka upp í EES-samninginn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1221 frá 4. júní 2026 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tímabundnar, markvissar ráðstafanir til rekstraraðstoðar og markvissa margfaldara fyrir útreikning á kröfum um eiginfjárgrunn stofnunar að því er varðar markaðsáhættu.
Í frumvarpsdrögunum er lagt til að 1. gr. c laga um fjármálafyrirtæki verði breytt til að ljá breytingum á CRR með reglugerðum (ESB) 2022/2036 og 2026/1221 lagagildi. Um er að ræða innleiðingu með tilvísun án nokkurra frávika eða breytinga enda er ekki svigrúm til staðar við innleiðinguna.
Reglugerð (ESB) 2022/2036
Reglugerð (ESB) 2022/2036 breytir bæði CRR og tilskipun 2014/59/ESB (BRRD-tilskipuninni) og er ætlað að tryggja að stórar alþjóðlegar bankasamstæður geti farið í gegnum skilameðferð án þess að raska fjármálastöðugleika og án opinberrar fjárhagsaðstoðar. Hún skýrir hvaða eigið fé og skuldbindingar innan slíkra samstæðna má telja fram til að uppfylla TLAC-kröfur og kemur þannig í veg fyrir að fjármagn til að mæta tapi sé talið oftar en einu sinni („daisy chain“-vandamálið), í samræmi við TLAC-staðla Alþjóðlega fjármálastöðugleikaráðsins (FSB). Með frumvarpinu eru breytingar á CRR innleiddar, en breytingar á BRRD-tilskipuninni verða innleiddar síðar með breytingu á reglugerð nr. 700/2024, sem sett er á grundvelli laga nr. 70/2020.
Reglugerð (ESB) 2026/1221
Með CRR III-reglugerðinni (ESB) 2024/1623 voru reglur um eiginfjárkröfur vegna markaðsáhættu endurskoðaðar til samræmis við Basel III-staðalinn í því skyni að gera kröfurnar áhættunæmari og draga úr mun á mati lánastofnana á markaðsáhættu. Gildistöku tiltekinna breytinga var frestað með framseldum reglugerðum (ESB) 2024/2795 og (ESB) 2025/1496, fyrst til 1. janúar 2026 og síðan til 1. janúar 2027, vegna tafa á hliðstæðum breytingum utan ESB, einkum í Bandaríkjunum og Bretlandi, til að skerða ekki samkeppnisstöðu lánastofnana á EES-svæðinu. Reglugerð (ESB) 2026/1221 felur ekki í sér frekari frestun heldur mælir fyrir um tímabundna aðlögun á útreikningi eiginfjárkrafna vegna markaðsáhættu þannig að þær verði áfram sambærilegar því sem leiðir af gildandi reglum til ársloka 2029, enda hafa hliðstæðar breytingar utan ESB enn tafist.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaða
fjr@fjr.is