Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.9.–9.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-186/2026

Birt: 25.9.2026

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjölskyldumál

Frumvarp til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum.

Nánari upplýsingar

Markmið frumvarpsins er að styrkja vernd barna í stafrænu umhverfi, draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum ótímabærrar notkunar samfélagsmiðla á líðan, þroska og öryggi þeirra og styðja foreldra og forsjáraðila við að setja börnum skýr og samræmd mörk um notkun samfélagsmiðla.

Í frumvarpinu er lagt til að börn yngri en 15 ára skuli ekki hafa sjálfstæðan aðgang að samfélagsmiðlum og að foreldrar og forsjáraðilar skuli sjá til þess að börn virði aldursmarkið. Aldursmarkið miðast við fæðingarár barns. Ekki er gert ráð fyrir refsingum eða öðrum viðurlögum vegna brota gegn ákvæðinu, enda er því fyrst og fremst ætlað að skapa samfélagslegt verndar- og uppeldisviðmið.

Þá er hugtakið samfélagsmiðill skilgreint út frá virkni þjónustunnar. Tiltekin þjónusta fellur þó utan skilgreiningarinnar, svo sem tölvuleikir, ritstýrðir fréttamiðlar, rafræn viðskipti, náms- og kennslukerfi, samskipti vegna skipulagðs skóla-, íþrótta- og frístundastarfs og lokuð samskipti milli einstaklinga eða afmarkaðra hópa.

Í frumvarpinu er lögð áhersla á ábyrgð foreldra og forsjáraðila, fræðslu og forvarnir. Gert er ráð fyrir reglubundinni fræðslu til barna, foreldra og forsjáraðila um ábyrga notkun samfélagsmiðla og áhrif notkunarinnar á heilsu, þroska og velferð barna, meðal annars á vettvangi grunnskóla.

Við undirbúning frumvarpsins var haft samráð við börn og ýmsa hagaðila. Meðal annars var tekið mið af niðurstöðum Barnaþings umboðsmanns barna 2025, sjónarmiðum ungmennaráðs Samfés, vinnustofum ráðuneytisins með börnum og hagaðilum.

Ráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarpsdrögin og hvetur sérstaklega börn og ungmenni, foreldra og forsjáraðila, skólasamfélagið, félaga- og hagsmunasamtök og aðra sem málið varðar til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (10)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa barnamála

mrn@mrn.is