Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.9.–8.10.2026

2

Í vinnslu

  • 9.10.2026–

Samráði lokið

Mál nr. S-185/2026

Birt: 25.9.2026

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að frumvarpi til laga um brottfall laga um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, nr. 155/1998

Málsefni

Kynnt eru drög að frumvarpi til laga um brottfall laga um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda vegna fyrirhugaðrar sameiningar sjóðsins við Almenna-Lífsverk lífeyrissjóð.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er lagt til að lög um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, nr. 155/1998, verði felld úr gildi. Frumvarpið er lagt fram í tengslum við fyrirhugaða sameiningu Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda (SL lífeyrissjóðs) og Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðs. Fyrir liggur samrunasamningur milli sjóðanna frá 8. júlí 2026 sem samþykktur var af sjóðfélögum Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðs í rafrænni atkvæðagreiðslu dagana 22.-24. september s.á. Samkvæmt samrunasamningnum er gert ráð fyrir að sameiningin komi til framkvæmda 1. janúar 2027. Markmið frumvarpsins er að skapa nauðsynlegan lagagrundvöll fyrir framkvæmd sameiningarinnar.

Gert er ráð fyrir að við sameininguna taki Safnar lífeyrissjóður við öllum eignum, réttindum og skuldbindingum Söfnunarsjóðsins. Jafnframt munu sjóðfélagar Söfnunarsjóðsins frá og með 1. janúar 2027 eiga aðild að Safnar lífeyrissjóði og áunnin réttindi þeirra flytjast til hins sameinaða sjóðs.

Gildandi lög standa að nokkru leyti í vegi fyrir sameiningunni. Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda er samkvæmt lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, falið sérstakt hlutverk sem móttökusjóði fyrir lögboðin lífeyrisiðgjöld þegar sjóðsaðild liggur ekki fyrir eða iðgjöldum hefur ekki verið skilað til rétts lífeyrissjóðs. Þá tekur sjóðurinn samkvæmt tilteknum ákvæðum laganna við iðgjöldum, eignum og skuldbindingum við sérstakar aðstæður. Þessi verkefni eru bundin við Söfnunarsjóðinn samkvæmt lögunum og gera því ráð fyrir tilvist hans sem sérstaks lífeyrissjóðs.

Í lögum nr. 155/1998, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, er jafnframt að finna sérákvæði um skipan stjórnar sjóðsins og ákveðna þætti í starfsemi hans sem víkja frá því sem almennt gildir um lífeyrissjóði. Þar má einkum nefna ákvæði um skipun stjórnar af hálfu ráðherra og heimild sjóðsins til að halda eftir hluta innheimtra iðgjalda til að standa straum af kostnaði við innheimtu vangoldinna iðgjalda.

Til að unnt verði að hrinda sameiningunni í framkvæmd er því nauðsynlegt að breyta þeim ákvæðum laga nr. 129/1997 sem vísa sérstaklega til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda og mæla fyrir um hlutverk hans. Í stað þess er lagt til að ráðherra geti ákveðið með reglugerð hvaða lífeyrissjóður annist þau sérstöku verkefni sem Söfnunarsjóðnum eru nú falin samkvæmt lögum. Jafnframt er lagt til að lög nr. 155/1998, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, falli brott frá og með 1. janúar 2027, enda mun sjóðurinn ekki lengur starfa sem sjálfstæður lífeyrissjóður eftir sameininguna. Verði frumvarpið að lögum er áformað að ráðherra feli hinum sameinaða sjóði hlutverkið með reglugerð.

Þá er í frumvarpinu lagt til ákvæði til bráðabirgða um að stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda haldi umboði sínu eftir gildistöku sameiningarinnar að því marki sem nauðsynlegt er til að ljúka málum sem varða starfsemi sjóðsins fyrir sameiningu og sinna þeim verkefnum sem leiða af sameiningunni. Meðal verkefna stjórnarinnar verður að ganga frá ársreikningi sjóðsins fyrir árið 2026, annast yfirfærslu eigna, réttinda og skuldbindinga til hins sameinaða sjóðs, gæta hagsmuna sjóðfélaga við framkvæmd sameiningarinnar og ljúka þeim ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að ljúka slitum sjóðsins. Umboði stjórnarinnar lýkur þegar slitum sjóðsins er lokið.

Vegna þess hve skammt er til 1. janúar 2027 eru, samhliða drögum að frumvarpinu, kynnt til samráðs áform um lagasetningu og mat á áhrifum.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (14)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

fjr@fjr.is