Til umsagnar
24.9.–9.10.2026
Í vinnslu
10.10.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-183/2026
Birt: 24.9.2026
Fjöldi umsagna: 7
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um neytendasamninga, nr. 16/2016.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um neytendasamninga, nr. 16/2016, með það að markmiði að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 (tilskipun um nútímavæðingu). Með henni voru gerðar breytingar á tilskipun 2011/83/ESB (tilskipun um réttindi neytenda), en sú tilskipun var innleidd í íslenskan rétt með lögum um neytendasamninga.
Frumvarpið er í samræmi við þær áherslur sem koma fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að stuðla að öflugri neytendavernd, virkri samkeppni og að auka skilvirkni og skýrleika í regluverki. Markmið frumvarpsins er að uppfæra og nútímavæða lög um neytendasamninga, nr. 16/2016, til samræmis við tækniþróun síðustu ára, aukna neytendavernd og breytta viðskiptahætti. Frumvarpið er jafnframt í samræmi við þingsályktun nr. 7/157 um stefnu í neytendamálum til ársins 2030, sem samþykkt var á Alþingi í febrúar á þessu ári. Í aðgerðaráætlun þeirrar þingsályktunar er lögð sérstök áhersla á netviðskipti og stafvæðingu á sviði neytendamála. Einnig kallast frumvarpið á við ný markaðssetningarlög sem samþykkt voru á Alþingi í vor og er hluti af almennum réttarúrbótum á sviði neytendamála sem lagðar verða fram á kjörtímabilinu.
Meðal helstu breytinga sem frumvarpið felur í sér eru útvíkkað gildissvið laganna og nýtt ákvæði sem varðar netmarkaði, ásamt uppfærslu á upplýsingaskyldu seljanda og rétti neytanda til að falla frá samningi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa viðskipta og markaða
atrn@atrn.is