Til umsagnar
24.9.–8.10.2026
Í vinnslu
9.–14.10.2026
Samráði lokið
15.10.2026
Mál nr. S-182/2026
Birt: 24.9.2026
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Tvær umsagnir bárust. Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja fagnar fyrirhuguðum lagabreytingum. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) leggja áherslu á að ekki verði gengið lengra en ESB tilskipanir kveða á um, kalla eftir meðalhófi í upplýsingagjöf, og tekið sé tillit til kostnaðar og nægur aðlögunartíma gefinn áður en breytingarnar taka gildi. Ákvæði um tímabundið háar innstæður verði skýrt um fjárhæðarmark, verndartíma og gætt að því að gildissviðið verði ekki rýmra en í tilskipunum og það sé innstæðueiganda að gera grein fyrir tímabundnum innstæðum.
Áformuðum umbótum er ætlað að auka skilvirkni, réttarvissu og að styrkja vernd innstæðueigenda, m.a. þegar um er að ræða tímabundið háar innstæður vegna tiltekinna lífsviðburða.
Löggjöf um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta er nú til endurskoðunar m.a. með það að markmiði að auka skilvirkni og tryggingarvernd vegna tiltekinna lífsviðburða.
Gert er ráð fyrir að löggjöfinni verði breytt þannig að:
a. Kveðið verði skýrar á um heimildir Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja (TvF) til lántöku,
b. nánar verði fjallað um upplýsingagjöf til TvF af hálfu þeirra fyrirtækja sem taka við innlánum,
c. skýrt verði að heildsöluinnlán geti talist til tryggingarhæfra innstæðna,
d. frestur Fjármálaeftirlitsins til að gefa út álit um getu aðildarfyrirtækis til að inna af hendi tryggða innstæðu verði styttur,
e. tryggingarvernd verði aukin fyrir tilteknar innstæður sem tímabundið nema háum fjárhæðum vegna atvika á borð við útgreiðslu örorkubóta, arfskipti, fasteignaviðskipti, hjónaskilnað eða sambærilegar aðstæður.
Að auki er um að ræða innleiðingu tveggja EES-gerða. Reglugerð (ESB) nr. 2023/662 og reglugerð (ESB) nr. 2024/895 breyta reglugerð (ESB) nr. 2015/63 sem innleidd er með tilvísunaraðferð í lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. Reglugerðirnar mæla fyrir um breytingu á útreikningum varðandi framlög í skilasjóð. Skilasjóður hefur verið fullfjármagnaður frá stofnun og er ekki gert ráð fyrir breytingu á því.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaða
fjr@fjr.is