Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 23.9.–7.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-180/2026

Birt: 23.9.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Ferðamál

Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald.

Nánari upplýsingar

Í frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum í eigu ríkisins, Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þessar ráðstafanir eru gerðar til að stuðla að verðmætasköpun, öryggi og álagsstýringu í ferðaþjónustu líkt og fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Í frumvarpinu kemur m.a. eftirfarandi fram:

- Einstaklingar sem hafa ekki skattalega heimilisfesti á Íslandi þurfa að greiða náttúru- og innviðagjald að upphæð kr. 4.500 fyrir skírteinið sem gildir í eitt ár. Utan háannatíma eða á tímabilinu 1. nóvember til 31. maí er gjaldið kr. 3.000. Gjaldið nær ekki til fólks með skattalega heimilisfesti á Íslandi sem hefur þegar tekið þátt í fjármögnun innviða og náttúruverndar sem skattgreiðendur. Ríkisfang ræður ekki gjaldskyldunni. Hins vegar þurfa allir einstaklingar 18 ára og eldri að afla rafræns aðgangsskírteinis (QR - kóði) fyrir umrædd svæði. Ferðaskrifstofum og ferðasölum verður gert kleift að kaupa skírteini fyrir fram fyrir sína viðskiptavini.

- Áætlaðar tekjur ríkissjóðs vegna gjaldsins eru sex til sjö milljarðar króna á ári. Fyrir árið 2027 eru tekjur áætlaðar um fimm milljarðar króna, er þá miðað við að lögin taki gildi 1. maí.

- Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður ekki lengur heimilt að innheimta bílastæðagjöld innan afmarkaðra gjaldskyldra landsvæða í eigu eða umsjón ríkisins og verða bílastæðagjöld innan Þjóðgarðsins á Þingvöllum þar með ekki lengur innheimt.

- Eftirlit með skírteinum verður á vegum Ferðamálastofu. Eftirlitsaðilum verður heimilt að krefjast framvísunar aðgangsskírteina, persónuskilríkjum eða öðrum nauðsynlegum upplýsingum. Einnig má fletta einstaklingi upp í skrá ef hann getur af afsakanlegum ástæðum ekki sýnt skírteinið. Etirlitsaðilar geta einnig lagt á sektir og innheimt á vettvangi. Nánari framkvæmd eftirlits verður útfærð í reglugerð.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (19)

Umsjónaraðili

Skrifstofa auðlinda

atrn@atrn.is