Til umsagnar
18.9.–4.10.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-179/2026
Birt: 18.9.2026
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019.
Áform liggja nú fyrir um breytingar á gildandi umferðarlögum en samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er ráðgert að frumvarp verði lagt fram í nóvember.
Bifreiðastæði (stöðureitir) og gjaldheimta af þeim hefur verið til nokkuð til umræðu. Rétt þykir að færa ákvæði laganna um stöðureiti til nútímalegra horfs þannig að ákvæðin taki einnig til gjaldheimtu af hálfu einkaaðila. Tilgangurinn er að gera gildandi lagaumhverfi skýrara en um leið að bæta stöðu almennings gagnvart rekstraraðilum gjaldskyldra bifreiðastæða.
Réttur handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða til þess að leggja ökutæki í gjaldskylt bifreiðastæði (stöðureit) án sérstakrar greiðslu er ekki í öllum tilvikum virtur. Aukin sjálfvirkni í gjaldheimtu hefur leitt til þess að handhafar stæðiskortanna þurfa gjarnan að tilkynna komu sína fyrir fram eða óska niðurfellingar gjalds sem lagt hefur verið á. Þetta skapar augljóst óhagræði. Rekstraraðilum ber að virða lögboðinn rétt handhafanna og tryggja að þeir fái hans notið. Til að stuðla að þessu þykir rétt að opnað verði fyrir miðlun upplýsinga um handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða úr opinberum skrám svo að hafið verði yfir vafa að miðlunin samræmist persónuverndarlögum.
Hraðakstur er viðvarandi vandamál hér á landi og innheimta sekta getur verið tímafrek og kostnaðarsöm þegar ökumaður er erlendur. Skoðað verður hvort rétt er að mæla fyrir um hlutlæga refsiábyrgð eiganda ökutækis vegna hraðakstursbrota. Sömu sjónarmið varðandi innheimtu sekta eiga við um brot gegn reglum um stærð og þyngd ökutækja og aksturs- og hvíldartíma og einnig kemur til skoðunar hlutlæg ábyrgð vegna þeirra brota.
Nýverið voru gerðar breytingar á ákvæðum um gildistíma ökuskírteina eldri ökumanna, m.a. í því skyni að draga úr álagi á heilbrigðisstarfsfólk. Tilefni þykir til að skoða mögulegar breytingar á heimildum umferðarlaga til afturköllunar ökuréttinda í því skyni að tryggja að umferðaröryggi verði ekki skert með breytingunni.
Aðrar breytingar eru gildandi lögum til skýringar eða fyllingar, svo sem varðandi vanhæfismörk vegna neyslu lyfja, beitingu viðurlaga sökum slíks aksturs og svo framvegis.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa samgangna
irn@irn.is