Til umsagnar
17.9.–2.10.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-178/2026
Birt: 17.9.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að stefnu
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Fjölskyldumál
Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn fátækt barna, til ársins 2031.
Framtíðarsýn stefnunnar er sú að Ísland verði samfélag þar sem hvert barn fær tækifæri til að njóta sín, þroskast og dafna, óháð efnahag og félagslegri stöðu fjölskyldu sinnar. Til þess þarf að bæta afkomu fjölskyldna, tryggja aðgengi að þjónustu og ryðja úr vegi hindrunum sem útiloka börn frá þátttöku.
Stefnan hvílir á fjórum stoðum:
• Fjárhagslegur stuðningur og virkni. Opinber stuðningur nýtist barnafjölskyldum sem best og ungmenni fái stuðning til náms og atvinnuþátttöku.
• Jöfn tækifæri til náms, frístunda og þátttöku. Fjárhagur fjölskyldunnar ráði ekki því hvort barn geti tekið þátt.
• Heildstæð og samþætt þjónusta. Fjölskyldur fái aðstoð við hæfi og geti nýtt réttindi sín án óþarfa hindrana.
• Skýrar mælingar og gagnreynd stefnumótun. Árangur verði metinn reglulega og þekking nýtt til að bæta aðgerðirnar.
Helstu staðreyndir
• Um 12,6% barna, eða um 10.500 börn, búa á heimilum undir lágtekjumörkum.
• Langvarandi fátækt barna mælist 5,1%.
• Um 30% barna einstæðra foreldra búa við fátækt.
• Lágtekju/fátæktar hlutfallið er 33,6% og hefur aukist meðal barna sem fædd eru erlendis og eiga báða foreldra af erlendum uppruna.
• Fátækt er einnig sérstaklega algeng hjá stórum fjölskyldum, ungum foreldrum og fjölskyldum þar sem foreldri er með örorku.
• Barnabætur og húsnæðisbætur hafa mikil áhrif og lækka lágtekjuhlutfall barna um rúmlega fjórðung.
• Samfélagslegur kostnaður fátæktar er talinn nema 35-103 milljörðum króna á ári.
Aðgerðaáætlunin hefur að geyma 13 aðgerðir. Þær lúta meðal annars að greiningu á opinberum fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur, stuðningi við ungmenni til náms og atvinnuþátttöku, jöfnu aðgengi að grunnþjónustu, skólastarfi og skipulögðu frístundastarfi, bættu aðgengi að ráðgjöf og upplýsingum n og virku samráði við foreldra og forsjáraðila með reynslu af fátækt. Einnig er lagt til að sett verði mælanleg markmið til að draga úr fátækt barna og komið á reglubundnu mati á árangri aðgerðanna.
Stefnan og aðgerðaáætlunin voru mótaðar í víðtæku samráði meðal annars við barnafjölskyldur með reynslu af fátækt, opinbera aðila, sveitarfélög, fræðasamfélagið, félaga- og hagsmunasamtök og fulltrúa skipulagðs frístundastarfs. Sú reynsla sem börn og foreldrar búa yfir þarf að hafa vægi við ákvarðanir og framkvæmd.
Ráðuneytið hvetur börn, foreldra, forsjáraðila, fagfólk og aðra áhugasama til að kynna sér drögin og senda inn umsögn. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum um áherslur stefnunnar, útfærslu aðgerða, framkvæmd og eftirfylgni.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa barnamála
mrn@mrn.is