Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.–30.9.2026

2

Í vinnslu

  • 1.10.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-175/2026

Birt: 16.9.2026

Fjöldi umsagna: 11

Áform um lagasetningu

Atvinnuvegaráðuneytið

Landbúnaður

Áform um lagasetningu - endurskoðun á lögum um velferð dýra nr. 55/2013

Málsefni

Í áformaskjalinu er lögð til heildarendurskoðun á lögum um velferð dýra nr. 55/2013.

Nánari upplýsingar

Með áformaskjalinu er lögð til heildarendurskoðun á lögum um velferð dýra. Í nóvember 2023 birti Ríkisendurskoðun skýrslu til Alþingis vegna stjórnsýsluúttektar stofnunarinnar á eftirliti Matvælastofnunar með velferð búfjár. Í skýrslunni er ítarleg umfjöllun um umfang og framkvæmd eftirlits og var tilgangur úttektarinnar að kanna hvort eftirlitið væri skilvirkt og árangursríkt og hvort það væri í samræmi við lög og reglugerðir um velferð dýra. Í skýrslunni koma fram ábendingar ríkisendurskoðanda í 13. liðum. Þá hefur dýravelferð verið mikið til umræðu undanfarin misseri og ljóst að þörf er á endurskoðun ýmissa ákvæða laga um velferð dýra nr. 55/2013. Áætlað er að leggja frumvarpið fram í nóvember 2026.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (8)

Umsjónaraðili

Skrifstofa landgæða og dýraheilsu

atrn@atrn.is