Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 14.–28.9.2026

2

Í vinnslu

  • 29.9.2026–

Samráði lokið

Mál nr. S-173/2026

Birt: 14.9.2026

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Innleiðing reglugerðar um samevrópska séreignarsparnaðarafurð (PEPP)

Málsefni

Frumvarpið mun fela í sér innleiðingu á ákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1238 um samevrópska séreignarsparnaðarafurð í íslenskan rétt (svokölluð PEPP-reglugerð).

Nánari upplýsingar

Samevrópska séreignarsparnaðarafurðin er valfrjáls tegund lífeyrissparnaðar sem neytendum innan EES-svæðisins stendur til boða. Afurðinni er ætlað að auka val einstaklinga við sparnað til starfsloka og verður flytjanleg milli EES-ríkja. Henni er ætlað að styðja við núverandi innlend lífeyriskerfi en ekki koma í stað þeirra.

Meginefni frumvarpsins muna snúa að lögfestingu PEPP-reglugerðarinnar og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, svo sem gildissvið, heimilda eftirlitsaðila til eftirlits og upplýsingaöflunar, viðurlaga við brotum gegn ákvæðum PEPP-reglugerðinnar og heimildar ráðherra og Seðlabanka Íslands til að setja stjórnvaldsfyrirmæli. Frumvarpið mun gera ráð fyrir að eftirlit með framkvæmd reglugerðarinnar verði í höndum Fjármálaeftirlitsins.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (8)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaða

fjr@fjr.is