Til umsagnar
11.–25.9.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-172/2026
Birt: 11.9.2026
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga stórþörungarækt í sjó.
Stórþörungarækt í sjó er enn á frumstigi hér á landi en áhugi á greininni hefur aukist á undanförnum árum. Greinin er talin geta skapað ný tækifæri til verðmætasköpunar, nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar, meðal annars með framleiðslu hráefna til matvæla, fóðurs, lífefna og annarra afurða. Núgildandi löggjöf tekur hins vegar ekki með skýrum og heildstæðum hætti á ræktun stórþörunga í sjó og sérstakt leyfiskerfi fyrir slíka starfsemi hefur ekki verið mótað.
Með fyrirhugaðri lagasetningu er stefnt að því að skapa skýran, fyrirsjáanlegan og heildstæðan lagaramma um stórþörungarækt í sjó. Meðal annars verður fjallað um rannsóknar- og rekstrarleyfi, aðgang að ræktunarsvæðum, úthlutun og nýtingu svæða, umhverfisvernd, ræktunarefni, vöktun, búnað og eftirlit. Jafnframt er markmiðið að tryggja að starfsemin þróist á grundvelli sjálfbærrar nýtingar, vistkerfisnálgunar og varúðarsjónarmiða.
Áformað er að setja sérstök heildarlög um ræktun stórþörunga í sjó. Ekki er gert ráð fyrir að lagasetningin hafi fjárhagsáhrif á ríkissjóð umfram það sem þegar hefur verið gert ráð fyrir í fjárlögum og fjármálaáætlun.
Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áform um lagasetningu og frummat.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa auðlinda
atrn@atrn.is