Til umsagnar
11.–24.9.2026
Í vinnslu
25.9.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-171/2026
Birt: 10.9.2026
Fjöldi umsagna: 11
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Lagðar verða til breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum með það að markmiði að styrkja og skýra lagarammann, einkum hvað varðar vernd og sjálfbæra nýtingu
Áformað er að endurskoða og skýra nokkur ákvæði laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Markmið breytinganna er að styrkja lagagrundvöll verndar og sjálfbærrar nýtingar villtra dýrastofna, stuðla að markvissari veiðistjórnun og samræma ákvæði laganna betur að þeirri stjórnsýslu sem talin er heppileg á málefnasviðinu.
Í áformunum er lagt til að lögfest verði almennt ákvæði um gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir tegundir eða stofna villtra fugla og spendýra þar sem þörf er á samræmdri stjórnun, einkum vegna veiða eða tjóns af þeirra völdum. Í slíkum áætlunum verði m.a. fjallað um ástand og búsvæði viðkomandi tegundar eða stofns, markmið um stofnstærð eða útbreiðslu og nauðsynlegar verndar- eða stýringaraðgerðir.
Þá verða meðal annars lagðar til breytingar á ákvæðum um stjórnun hreindýraveiða. Gert er ráð fyrir að skýra hlutverk og verkaskiptingu stofnana ríkisins við Náttúrustofu Austurlands og hreindýraráð, meðal annars við undirbúning ákvarðana um veiðikvóta og framkvæmd veiða.
Þá verður fjallað um skilyrði fyrir útgáfu og nýtingu veiðileyfa, kröfur um skotpróf og afleiðingar þess ef tilskildum skilyrðum er ekki fullnægt.
Jafnframt er fyrirhugað að endurskoða ákvæði um leiðsögumenn með hreindýraveiðum. Markmiðið er að tryggja að réttindi leiðsögumanna byggist ávallt á viðeigandi þekkingu og raunverulegri reynslu af staðháttum á þeim veiðisvæðum þar sem þeir starfa. Meðal annars verður fjallað um skilyrði fyrir öflun og viðbót réttinda, námskeið, próf og leiðsögn undir handleiðslu reynds leiðsögumanns.
Þá er fyrirhugað að lögfesta heimild til inngripa vegna hlunnindaveiða í háf þegar nauðsynlegt er til að tryggja vernd og sjálfbæra nýtingu viðkomandi stofna. Heimildin getur tekið til þess að takmarka eða stöðva tímabundið veiðar eða aðra hlunnindanýtingu ef fyrirliggjandi upplýsingar um ástand eða þróun stofns gefa tilefni til. Við beitingu heimildarinnar verður horft til sjónarmiða um meðalhóf og eftir atvikum tekið tillit til hefðbundinnar nýtingar og hagsmuna rétthafa.
Einnig verða lagðar til breytingar á ákvæðum um gjaldtöku vegna stjórnsýslu og þjónustu samkvæmt lögunum og eftir atvikum önnur ákvæði skýrð eða samræmd til að stuðla að skilvirkari og fyrirsjáanlegri framkvæmd.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa náttúru og minjaverndar
hafsteinn.s.hafsteinsson@urn.is