Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 10.–18.9.2026

2

Í vinnslu

  • 19.9.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-170/2026

Birt: 10.9.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Dómstólar

Breyting á lögum um dómstóla – aðsetur Landsréttar o.fl

Málsefni

Lagt er til að afnema lagafyrirmæli um aðsetur Landsréttar í Reykjavík og breyta reglum um setningu héraðsdómara og endurskipun dómenda við Endurupptökudóm.

Nánari upplýsingar

Landsréttur hefur frá því að hann tók til starfa árið 2018 haft aðsetur utan Reykjavíkur á grundvelli bráðabirgðaheimildar, þótt í lögum um dómstóla sé kveðið á um aðsetur hans í Reykjavík. Heimildin rennur út 1. janúar 2027. Með frumvarpinu er lagt til að lagafyrirmæli um aðsetur Landsréttar í Reykjavík verði felld brott. Ekki verði því lengur mælt fyrir um í lögum í hvaða sveitarfélagi dómstóllinn hafi aðsetur.

Jafnframt er lagt til að skýrt verði kveðið á um heimild til að setja héraðsdómara í tilteknum tilvikum þótt þeir hafi náð 70 ára aldri, til samræmis við hliðstæð ákvæði um Hæstarétt og Landsrétt. Þá verði heimilt að skipa sama mann sem aðalmann við Endurupptökudóm tvisvar í stað einu sinni.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa réttarfars

dmr@dmr.is