Til umsagnar
9.–30.9.2026
Í vinnslu
1.10.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-169/2026
Birt: 9.9.2026
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Áformaðar eru breytingar á lögum með það að markmiði að stuðla að auknu öryggi almennings og einfalda stjórnsýslu málaflokksins.
Þann 4. maí 2026 skipaði dómsmálaráðherra starfshóp til að endurskoða lög um öryggisþjónustu nr. 58/1997 með hliðsjón af löggjöf annarra Norðurlanda og leggja til breytingar á lögunum í samræmi við þá yfirferð. Þá er starfshópnum jafnframt falið, í samráði við Atvinnuvegaráðuneytið (ATRN), að taka til skoðunar efnisákvæði laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald er varða dyraverði, þar á meðal fýsileika þess að færa ákvæði um dyravörslu undir endurskoðuð lög um öryggisþjónustu.
Markmið áformanna er annars vegar að stuðla að auknu öryggi almennings og hins vegar, eftir atvikum, að einfalda stjórnsýsluna, með því að mögulega færa tengd ákvæði sem varða dyraverði úr lögum nr. 85/2007 yfir í endurskoðuð lög um öryggisþjónustu.
Um er að ræða heildarendurskoðun á lögum um öryggisþjónustu þar sem áhersla verður lögð á að stuðla að bættu réttaröryggi þeirra sem þiggja þjónustuna sem og almennu öryggi í víðara samhengi. Að auki þykir rétt að endurskoða núverandi kröfur um dyravörslu, endurskoða skilyrði til að öðlast leyfi til að starfa við dyravörslu og veita viðeigandi stjórnvöldum auknar heimildir til að beita viðurlögum og afturkalla leyfi þegar svo ber undir. Í kjölfar lagabreytinga yrðu gerðar viðeigandi breytingar á gildandi reglugerðum sem settar hafa verið á grundvelli núgildandi laga.
Áformaðar breytingar munu m.a. kveða á um gildisvið laganna og markmið, leyfisveitanda, skilyrði fyrir leyfisveitingu, eftirlit með leyfishöfum, afturköllun leyfis og viðurlög, hæfnisskilyrði, menntun, þjálfun og verksvið starfsmanna öryggisfyrirtækja og dyravarða, tryggingar og miðlun gagna, alþjóðlega staðla, þ.m.t. í tengslum við verkefni erlendra öryggisþjónusta hér á landi, heimildir til bakgrunnsathugana umsækjenda, kröfur um fjölda dyravarða/öryggisvarða miðað við fjölda gesta á m.a. samkomum, skemmtistöðum og krám og í tengslum við tækifærisleyfi og rekstrarleyfi með áfengisveitingum, og heimildir lögreglu til þvingunarráðstafana þegar svo ber undir.
Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi á 158. Löggjafarþingi, í byrjun árs 2027.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa löggæslumála
dmr@dmr.is