Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 8.–30.9.2026

2

Í vinnslu

  • 1.10.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-168/2026

Birt: 8.9.2026

Fjöldi umsagna: 6

Áform um lagasetningu

Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegur og fiskeldi

Frumvarp til laga um hafeldi - áform

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um hafeldi ásamt frummati á áhrifum lagasetningar.

Nánari upplýsingar

Í frumvarpi til laga um lagareldi (þingskjal 898 – 529. mál) sem flutt var á 157. löggjafarþingi, en náði ekki fram að ganga, var í 4. þætti frumvarpsins fjallað um hafeldi í tveimur köflum, annars vegar almennur kafli um hafeldi og hins vegar kafli um grunnrannsóknir vegna hafeldis.

Hafeldi er grein sem er enn á hugmyndastigi hér á landi en aukinn áhugi hefur verið á slíkri starfsemi síðastliðin ár. Til að komast að því hvort og hvar hafeldi sé vænlegt í íslenskri lögsögu þarf að ráðast í fjölmargar og ítarlegar rannsóknir. Með frumvarpinu er ætlunin að sníða ramma um rannsóknir og leyfisveitingaferli en miklu máli skiptir að fyrirsjáanleiki og skýr löggjöf sé fyrir hendi til að styðja við fyrstu skref greinarinnar.

Samning frumvarpsins stendur yfir og samhliða því verður unnið að endanlegu mati á fjárhagsáhrifum lagasetningarinnar og því gerð skil í endanlegu mati á fjárhagslegum áhrifaþáttum fyrir ríkið.

Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áform um lagasetningu og frummat.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa auðlinda

atrn@atrn.is