Til umsagnar
4.–22.9.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-166/2026
Birt: 4.9.2026
Fjöldi umsagna: 6
Drög að reglugerð
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um skilgreiningu hugtaksins "ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar".
Reglugerð þessari er ætlað að gilda um mat á því hvort dvöl EES- eða EFTA-borgara eða aðstandenda þeirra megi teljast ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar, sbr. 83. gr. og c-liður 1. mgr. 84. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Markmið reglugerðarinnar er að skilgreina hugtakið "ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar" sem haft getur áhrif á rétt til dvalar samkvæmt 83. gr. laga nr. 80/2016. Í reglugerðinni eru settir fram þættir sem sveitarfélögum ber að taka tillit til þegar mat er framkvæmt á því hvort dvöl EES- eða EFTA-borgara geti talist ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar. Matið skal vera heildstætt og einstaklingsbundið og skulu skilgreindir þættir 3. gr. reglugerðarinnar túlkaðir viðkomandi einstaklingi í hag.
Útlendingastofnun tekur ákvörðun um hvort einstaklingur teljist ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar og áhrif þess á dvalarrétt.
Reglugerðin er sett með stoð í 2. málsl. 5. mgr. 83. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, með síðari breytingum.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa félagsmála
frn@frn.is