Til umsagnar
3.–17.9.2026
Í vinnslu
18.9.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-165/2026
Birt: 3.9.2026
Fjöldi umsagna: 4
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir áform um lagasetningu sem miðar að því að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 um markaðseftirlit.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011 var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 í desember 2023. Áformað er að innleiða reglugerðina hér á landi með setningu nýrra heildarlaga um markaðseftirlit og breytingum á lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995.
Reglugerð (ESB) 2019/1020 er ætlað að styrkja markaðseftirlit, bæta samstarf eftirlitsstjórnvalda og stuðla að því að vörur sem boðnar eru fram á innri markaðnum uppfylli þær kröfur sem um þær gilda. Hún tekur meðal annars mið af aukinni netverslun og fjallar sérstaklega um eftirlit með vörum sem koma inn á EES-svæðið frá þriðju ríkjum.
Almennar reglur um vöruöryggi og markaðseftirlit er nú að finna í sömu lögum hér á landi, þ.e. lögum nr. 134/1995. Áformað er að aðskilja þessa tvo þætti löggjafarinnar með setningu nýrra heildarlaga um markaðseftirlit sem innleiði reglugerð (ESB) 2019/1020 og breytingum á lögum nr. 134/1995 þannig að þau fjalli framvegis eingöngu um vöruöryggi. Markmiðið með þessari tilhögun er að einfalda og skýra gildandi regluverk og tryggja betra samræmi við samsvarandi löggjöf Evrópusambandsins.
Í nýjum lögum verður meðal annars fjallað um hlutverk og valdheimildir markaðseftirlitsstjórnvalda, samstarf þeirra og samræmingu markaðseftirlits og hlutverk miðlægrar tengiskrifstofu (single liaison office) sem gert er ráð fyrir að Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun sinni.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa viðskipta og markaða
steindor.dan.jensen@atrn.is