Til umsagnar
2.–16.9.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-164/2026
Birt: 2.9.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025.
Lög um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025, tóku gildi 1. janúar 2026. Með lögunum var lögfest nýtt tekjuöflunarkerfi vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu, þ.m.t. ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Kílómetragjaldið tekur mið af þyngd ökutækja og þar með af vegsliti sem þau valda. Með því verður gjaldataka af ökutækjum í betra samræmi við áhrif þeirra á viðhaldskostnað vegakerfisins. Upptaka kílómetragjalds er til þess fallin að skjóta styrkari stoðum undir tekjuöflun ríkisins og stuðla jafnframt að skilvirkara og sanngjarnara gjaldakerfi fyrir eigendur og umráðamenn ökutækja.
Með hliðsjón af fenginni reynslu af upptöku kílómetragjalds og framkvæmd laganna þykir tilefni til að leggja til breytingar á lögunum, einkum í því skyni að styrkja lagaumgjörðina og styðja þar með við framkvæmd gjaldtökunnar og innheimtu gjaldsins.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa skattamála
fjr@fjr.is