Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.–16.9.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-163/2026

Birt: 2.9.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi)

Málsefni

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum sem er liður í aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið er liður í stefnu og aðgerðum stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi, Öruggara Ísland, sem kynnt var í janúar 2026. Skipulögð brotastarfsemi hér á landi hefur aukist að umfangi og tekið á sig flóknari og alvarlegri mynd. Brotahópar starfa í auknum mæli þvert á landamæri, nýta sér tækniframfarir og flókin fjármálatengsl. Brotahópar fremja með skipulögum hætti meðal annars fíkniefnabrot, peningaþvætti, mansal, netbrot og alvarleg ofbeldisbrot. Með frumvarpinu er leitast við að bregðast við þeirri þróun sem orðið hefur á skipulagðri brotastarfsemi hér á landi með breytingum á refsilöggjöf, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum.

Lagðar eru til breytingar á almennum hegningarlögum sem miða að því að refsilöggjöfin taki skýrar mið af þeirri auknu hættu sem fylgir skipulagðri brotastarfsemi. Lagt er til að heimilt verði að hækka refsingu þegar brot er liður í starfsemi skipulagðs brotahóps og þegar barn eða ungmenni undir 18 ára aldri er fengið til þátttöku í refsiverðri háttsemi, þar á meðal gegn greiðslu eða öðrum ávinningi. Þá verður skilgreining á skipulögðum brotahópi rýmkuð og færð nær skilgreiningu samnings Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri skipulagðri brotastarfsemi. Jafnframt verður hámarksrefsing fyrir gegn 175. gr. a. hækkuð úr fjögurra ára fangelsi í átta ár.

Enn fremur er lagt til að heimildir til upptöku ólögmæts ávinnings verði rýmkaðar. Unnt verður að gera verðmæti upptæk þegar ætla má að þau séu ávinningur af refsiverðri háttsemi eða standi í beinum tengslum við slíka háttsemi, þótt ekki liggi fyrir sakfelling fyrir tiltekið brot. Upptaka verður háð dómi eða úrskurði dómstóls. Breytingin tekur mið af alþjóðlegri þróun, þar á meðal regluverki ESB, tilmælum FATF og nýlegri löggjöf í Svíþjóð.

Í lögum um meðferð sakamála eru lagðar til breytingar sem miða að því að laga rannsóknarreglur að umfangi og eðli alvarlegrar og skipulagðrar brotastarfsemi. Lagt er til að almennur frestur til að veita verjanda aðgang að rannsóknargögnum verði lengdur úr þremur vikum í sex, án þess þó að hróflað verði við þeirri meginreglu að aðgangur skuli veittur jafnskjótt og unnt. Hámarkslengd gæsluvarðhalds áður en mál er höfðað verður lengd úr tólf vikum í sex mánuði. Skilyrði gæsluvarðhalds verða óbreytt og dómstólar leggja eftir sem áður sjálfstætt mat á nauðsyn þess og meðalhóf.

Jafnframt er lagt til að skýr lagaheimild verði sett um stafræna leit í haldlögðum farsímum, tölvum og öðrum raftækjum. Heimildir til öflunar upplýsinga frá fjarskiptafyrirtækjum munu ná til annarra sambærilegra þjónustuveitenda og skýrt að þær taki bæði til upplýsinga sem þegar hafa orðið til og upplýsinga sem verða til síðar. Þá verður ákæranda heimilt, þegar brýn hætta er á sakarspjöllum, að ákveða að tiltekin rannsóknaraðgerð skv. 80. - 82. gr. laganna hefjist án undangengins dómsúrskurðar. Krafa skal þá lögð fyrir héraðsdóm svo fljótt sem unnt er og eigi síðar en 48 klukkustundum eftir að aðgerð hefst. Einnig er lagt til að úrskurður um slíkar aðgerðir geti gilt í allt að átta vikur í stað fjögurra.

Með breytingum á lögreglulögum er lagt til að lögregla starfræki sérstakan samráðsvettvang með öðrum viðeigandi stjórnvöldum og einkaaðilum til að efla samvinnu og upplýsingamiðlun gegn skipulagðri brotastarfsemi. Einnig verður lögfest heimild til notkunar löggæslumyndavéla og reksturs miðlægs kerfis fyrir vinnslu og varðveislu myndefnis. Ráðherra verður falið að setja nánari reglur um notkun kerfisins, þar á meðal um notkun gervigreindar, greiningu andlitsmynda, búkmyndavélar og sjálfvirka greiningu skráningarnúmera bifreiða. Þá eru lagðar til breytingar á málsmeðferð er varðar eftirlit með einstaklingum sem tengjast skipulögðum brotahópum.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa alþjóðamála

kjartan.olafsson@dmr.is