Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 31.8.–28.9.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-160/2026

Birt: 31.8.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að stefnu

Heilbrigðisráðuneytið

Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta

Hvítbók um endurhæfingarþjónustu

Málsefni

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að Hvítbók um endurhæfingarþjónustu á Íslandi.

Nánari upplýsingar

Hvítbók er stefnuskjal stjórnvalda sem felur í sér umfjöllun og ákvörðun um framtíðarsýn, markmið og árangur af starfsemi yfir tiltekið tímabil, ávinning á tilteknu sviði eða sjónarmið og gildi sem byggt skal á. Skjalinu er ætlað að stuðla að heildstæðri áætlanagerð, fyrirsjáanleika við ákvarðanatöku og markvissu eftirliti.

Árið 2020 gaf heilbrigðisráðuneytið út stefnutillögu um endurhæfingarþjónustu sem byggði á greiningu á styrkleikum og veikleikum þjónustunnar ásamt tillögum að úrbótum. Stefnutillagan og aðgerðaáætlunin sem á henni byggði hafa verið grundvöllur áframhaldandi vinnu innan málaflokksins. Við gerð hvítbókarinnar hefur jafnframt verið horft til heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og áherslna Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar samkvæmt Rehabilitation 2030 Initiative, en stofnunin hefur beint því til aðildarþjóða að stefnumótun og forgangsröðun endurhæfingar þurfi meiri athygli stjórnvalda.

Öflug endurhæfingarþjónusta er lykilþáttur í öflugu opinberu heilbrigðiskerfi, enda gerir endurhæfing einstaklingum með færniskerðingu og heilsufarsvanda kleift að auka virkni og efla þátttöku í samfélaginu. Með þróun heilbrigðisþjónustu á alþjóðavísu og öldrun þjóða heims mun þörf fyrir endurhæfingarþjónustu aukast verulega á komandi árum. Algengi flókinna og fjölþættra heilsufarsvandamála fer vaxandi samhliða aukinni tíðni langvinnra sjúkdóma og geðrænna áskorana. Þessi þróun kallar á samþætt endurhæfingarkerfi sem er kjarni í meðferð langvinnra sjúkdóma og afleiðinga slysa og áfalla, ekki aukaþáttur innan heilbrigðiskerfisins.

Í hvítbókinni er áhersla lögð á þverfaglega endurhæfingarþjónustu innan heilbrigðiskerfisins, stöðu hennar og framtíðarsýn um samfellda, einstaklingsmiðaða og aðgengilega þjónustu. Við vinnuna hefur upplýsinga verið aflað frá heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum og veitendum endurhæfingarþjónustu sem starfa á grundvelli þjónustusamninga við Sjúkratryggingar Íslands.

Markmið hvítbókarinnar er að móta skýra framtíðarsýn um fyrirkomulag og afmörkun endurhæfingarþjónustu sem veitt er og fjármögnuð af heilbrigðisráðuneyti. Bókin byggir á þeirri meginforsendu að skipulag endurhæfingar eigi að taka mið af virkni einstaklinga fremur en sjúkdómsgreiningum, m.a. með því að:

• Greina áskoranir og þjónustuþörf til framtíðar.

• Móta heildræna og samfellda þjónustukeðju með skýrri stigskiptingu og skilgreindu hlutverki þjónustuveitenda.

• Skilgreina samræmt mat á endurhæfingarþörfum með samræmdum tilvísunum og söfnun árangursmælinga, m.a. með notkun ICF-flokkunarkerfisins.

• Þróa heildstætt þjónustumódel í endurhæfingu til að jafna aðgengi að gagnreyndri endurhæfingarþjónustu fyrir alla, óháð búsetu, efnahag og félagslegri stöðu.

• Skýra viðeigandi fjármögnun endurhæfingarúrræða og þjónustukaup og -veitingu hins opinbera svo unnt sé að efla fjárfestingu í endurhæfingu.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (15)

Umsjónaraðili

Skrifstofa heilbrigðisþjónustu

hrn@hrn.is