Til umsagnar
28.8.–11.9.2026
Í vinnslu
12.9.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-159/2026
Birt: 28.8.2026
Fjöldi umsagna: 4
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta o.fl.
Með frumvarpinu, sem samið er í dómsmálaráðuneytinu, er verið að fylgja eftir þeirri stefnumótunarvinnu sem átt hefur stað undanfarin ár í málefnum sýslumanna. Í byrjun árs 2021 kom út skýrsla dómsmálaráðuneytisins, Sýslumenn – framtíðarsýn; umbætur á þjónustu og rekstri, þar sem sett er fram stefna um framtíðarsýn fyrir málefni sýslumanna. Í kjölfarið lagði þáverandi ráðherra skýrsluna fram á Alþingi (þskj. 1043, 609. mál á 151. löggjafarþingi 2020–2021). Í stefnunni felst að sýslumannsembættin veiti framúrskarandi þjónustu óháð búsetu og staðsetningu, hvar og hvenær sem er, eftir því sem hentar almenningi hverju sinni. Á grundvelli stefnumótunar sem hefur átt sér stað síðustu ár voru lög um um sýslumann, nr. 9/2026 samþykkt á Alþingi 2. febrúar 2026. Við gildistöku laganna, 1. janúar 2027 verða núverandi níu sýslumannsembætti sameinuð í eitt embætti sýslumanns. Frá sama tíma verður landið eitt umdæmi sýslumanns og sýslumanni falin stjórn, rekstur og fagleg ábyrgð á framkvæmd verkefna embættisins um land allt. Í lögum um sýslumann er kveðið á um að sýslumaður fari með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins eftir því sem lög, reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Jafnframt er með lögunum lögð áhersla á jafnt aðgengi að þjónustu hins opinbera óháð búsetu, aukið framboð stafrænnar þjónustu, framþróun embættisins og eflingu starfsemi á landsbyggðinni.
Ljóst er að samþykkt laga um sýslumann kallar á breytingar á fjölmörgum lagabálkum og tilgangur frumvarpsins er að laga aðra löggjöf að þeim breytingum sem sameining sýslumannsembætta hefur í för með sér. Með því eru lagðar til breytingar á 67 lagabálkum sem fjalla um sýslumenn og verkefni þeirra og eru breytingarnar misumfangsmiklar. Þær veigamestu lúta að umdæmamörkum sýslumanna og tengingu þeirra við umdæmamörk héraðsdómstóla, sérverkefnum einstakra embætta og hæfisskilyrðum fyrir framkvæmd tiltekinna embættisverka. Víða í lögum eru ákvæði sem fjalla um verkefni sýslumanna og byggjast á því að sýslumannsembættin séu fleiri en eitt. Í mörgum lagabálkum eru ákvæði sem þjóna þeim tilgangi að ákveða hvaða sýslumannsembætti fari með úrlausn máls og á öðrum stöðum er kveðið á um heimild til handa ráðherra að fela einu sýslumannsembætti að fara með framkvæmd afmarkaðs verkefnis. Ljóst er að slík ákvæði fara bæði illa saman við þá breyttu skipan sem tekur gildi 1. janúar 2027 og verða að verulegu leyti marklaus þegar aðeins eitt embætti sýslumanns er á landsvísu. Af þeirri ástæðu er með frumvarpi þessu lagt til að gerðar verði breytingar á þeim ákvæðum laga sem byggjast á eldri umdæmaskipan þannig að þau verði löguð að hinu nýja skipulagi.
Markmið frumvarpsins er fyrst og fremst að tryggja heildstætt og samræmt lagaumhverfi fyrir hið sameinaða embætti sýslumanns. Frumvarpið tryggir jafnframt einfaldari og skýrari stjórnsýslu, stuðlar að samræmdri málsmeðferð og eyðir hindrunum fyrir innleiðingu rafrænnar og stafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumanni. Veigamestu breytingarnar lúta að fjölda sýslumannsembætta og umdæma þeirra, umdæmamörkum sýslumanna og tengingu þeirra við umdæmamörk héraðsdómstóla og hæfisskilyrðum fyrir framkvæmd tiltekinna embættisverka. Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu er skipt í átta þætti:
1. Fjöldi embætta og umdæma.
2. Tenging við héraðsdómstóla.
3. Hæfi sýslumanns til að fara með framkvæmd tiltekinna embættisverka.
4. Lögbundnir starfstitlar við framkvæmd verkefna.
5. Umboðsmenn.
6. Gjaldtökuheimildir.
7. Tæknilega hlutlaust orðalag.
8. Aðrar orðalags- og samræmingarbreytingar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa borgaralegra réttinda
magnea.magnusdottir@dmr.is