Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 27.8.–8.9.2026

2

Í vinnslu

  • 9.9.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-158/2026

Birt: 27.8.2026

Fjöldi umsagna: 2

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Hagskýrslugerð og grunnskrár

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vegabréf

Málsefni

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um vegabréf.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um vegabréf, nr. 136/1998. Annars vegar eru lagðar til breytingar á ákvæðum sem eru til þess fallnar að ná betra samræmi við lög um nafnskírteini, nr. 55/2023, og hins vegar er lagt til að við hverja grein laganna verði bætt sambærilegri fyrirsögn og í lögum um nafnskírteini.

Breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu snúa í fyrsta lagi að umsókn og útgáfu vegabréfa. Í öðru lagi snúa breytingarnar að meðferð og öryggi persónu- og lífkennaupplýsinga. Lagt er til að lögfestar verði skýrar reglur um söfnun og varðveislu lífkennaupplýsinga, þar á meðal um hverjir mega sinna söfnun þeirra og þær öryggiskröfur sem gilda um varðveislu þeirra. Í þriðja lagi snúa breytingarnar að gildi, afturköllun og meðferð vegabréfa. Er m.a. lagt til að hnykkt verði á gildi vegabréfa sem persónuskilríki og að heimilt verði að afturkalla vegabréf sem ekki hefur verið sótt innan tiltekins tíma. Í fjórða lagi snúa breytingarnar að skráningu og upplýsingagjöf um gildi vegabréfa. Þannig felur ein tillaga frumvarpsins í sér að Þjóðskrá Íslands haldi sérstaka skrá yfir númer vegabréfa og hvort þau séu í gildi og að almenningi verði veittur aðgangur að skránni í því skyni að unnt sé að staðreyna gildi vegabréfa.

Mikilvægt er að samræmi sé á milli þeirra laga sem varða útgáfu persónuskilríkja hér á landi, þ.e. vegabréfa og nafnskírteina, og er því fyrirhugað að leggja til nokkrar breytingar á lögum um vegabréf með það fyrir augum.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (12)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa borgaralegra réttinda

dmr@dmr.is