Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 26.8.–9.9.2026

2

Í vinnslu

  • 10.9.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-157/2026

Birt: 26.8.2026

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Forsætisráðuneytið

Hagskýrslugerð og grunnskrár

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð

Málsefni

Forsætisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð nr. 163/2007.

Nánari upplýsingar

Undanfarin ár hefur Hagstofa Íslands starfrækt sjálfstæða rannsóknareiningu sem annast hefur útgáfu þjóðhagsspáa. Spár Hagstofunnar hafa síðan legið til grundvallar stefnumörkun í opinberum fjármálum, þ.e. fjármálastefnu og fjármálaáætlun.

Nú liggur fyrir að fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að áætlanir í opinberum fjármálum, þ.m.t. fjármálaáætlun 2027-2031, skuli byggja á þjóðhagsspám Seðlabanka Íslands. Ljóst er að spá bankans uppfyllir einnig skilyrði laga um opinber fjármál og að því marki sem frekari upplýsinga er þörf hefur verið gert samkomulag um að ráðuneytinu verði látnar í té tilteknar viðbótarupplýsingar sem bankinn birtir ekki opinberlega. Stefna í opinberum fjármálum og peningastefnan munu þannig byggja á sömu forsendum og umgjörð um mótun efnahagsstefnu stjórnvalda styrkjast.

Með frumvarpi þessu er því lagt til að skylda Hagstofunnar til starfrækslu sjálfstæðrar rannsóknareiningar verði felld brott úr lögum, enda ekki lengur fyrir hendi aðstæður sem kalla á þjóðhagsspá þaðan. Með því móti verði komið í veg fyrir tvíverknað í starfsemi hins opinbera.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa samhæfingar

for@for.is