Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.8.–1.9.2026

2

Í vinnslu

  • 2.9.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-156/2026

Birt: 25.8.2026

Fjöldi umsagna: 5

Drög að frumvarpi til laga

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Örorka og málefni fatlaðs fólks

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót)

Málsefni

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 um eingreiðslu, orlofs- og desemberuppbætur.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu eru lagðar til tvær breytingar á gildandi lögum um almannatryggingar.

Annars vegar er lagt til að í lögunum verði skýrt kveðið á um að greiða skuli orlofs- og desemberuppbætur til lífeyrisþega. Í frumvarpinu er þannig lagt til að nýrri málsgrein verði bætt við 21., 24., 25. og 27. gr. laganna þar sem kveðið verði á um að árlega skuli greiða orlofs- og desemberuppbætur til örorku-, hlutaörorku- og ellilífeyrisþega sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega. Jafnframt er gert ráð fyrir að nánar skuli kveðið á um fyrrnefndar orlofs- og desemberuppbætur í reglugerð sem ráðherra skuli setja árlega.

Hins vegar er lagt til að bætt verði við lögin nýju ákvæði til bráðbirgða þar sem kveðið verði á um sérstaka eingreiðslu í desember 2026 til tekjulægstu hópa þeirra sem eiga rétt samkvæmt lögum um almannatryggingar á greiðslu örorkulífeyris skv. 24. gr., hlutaörorkulífeyris skv. 25. gr. eða ellilífeyris skv. 16. eða 17. gr., sem og þeirra sem eiga rétt á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum skv. 27. gr., enda hafi viðkomandi verið með skráð lögheimili hér á landi 1. nóvember 2026.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa vinnumarkaðar og almannatrygginga

frn@frn.is