Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 21.8.–4.9.2026

2

Í vinnslu

  • 5.9.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-154/2026

Birt: 21.8.2026

Fjöldi umsagna: 6

Drög að stefnu

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Drög að aðgerðaáætlun gegn mansali

Málsefni

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að aðgerðaáætlun gegn mansali fyrir árin 2026-2030. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 4. september.

Nánari upplýsingar

Aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali fyrir árin 2026-2030 er sú fjórða sinnar tegundar en sú fyrsta var samþykkt þann 17. mars 2009. Hún tekur við af áherslum stjórnvalda í aðgerðum gegn mansali og annars konar hagnýtingu frá árinu 2019.

Á grundvelli reynslu af fyrri aðgerðaáætlunum stjórnvalda gegn mansali er megináhersla lögð á að efla enn frekar seiglu og samhæfingu kerfa og stofnana í baráttunni gegn mansali með aðgerðaáætlun þessari. Samstarf verður aukið milli kerfa og boðleiðir skýrðar, ekki síst þegar kemur að börnum sem þolendum mansals. Stuðlað verður að markvissari fræðslu meðal fagfólks um mansal og hvernig bregðast megi við þegar grunur leikur á að einstaklingur sé þolandi mansals. Þá verður sérstaklega stuðlað að fræðslu og færniuppbyggingu meðal lögreglu og annarra aðila innan réttarvörslukerfisins með það að markmiði að þannig fjölgi málum til rannsóknar og dómum yfir gerendum mansals.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa jafnréttismála

dmr@dmr.is