Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.8.–1.9.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-151/2026

Birt: 17.8.2026

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Atvinnuvegaráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Áform um breytingu á lögum um bókhald (ný heildarlög)

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneytið vinnur að nýjum heildarlögum um bókhald og er það í samræmi við markmið að stuðla að heilbrigðu og samkeppnishæfu viðskiptalífi sem og að tryggja að löggjöf sé skýr og skilvirk.

Nánari upplýsingar

Með framförum í tæknimálum hefur umhverfi bókhalds tekið stakkaskiptum frá því lög nr. 145/1994, um bókahald voru skrifuð. Færsla bókhalds hefur færst frá bókhaldsbókum á pappír inn í hinn rafræna heim. Þar sem lögin voru skrifuð með pappírsbókhalds hugsun þarf að gera breytingar á lögunum þannig að þau endurspegli þann raunveruleika hvernig bókhald sé fært í dag. Um er að ræða heildarendurskoðun laganna með áherslu á rafrænt bókhald og einföldun fyrir minni félög. Skilgreiningakaflinn bættur og hugtök í ljósi tæknibreytinga skýrð. Varðveisluákvæði bókhaldsbóka er breytt og lagatextinn uppfærður í ljósi tæknibreytinga. Einnig verða ákvæðin um skoðunarmenn tekið til skoðunar. Lögin voru upphaflega skrifuð með eldri framkvæmd bókhalds í huga, pappírsbókhald. Með framförum í tækni hefur bókhaldsumhverfið verið að breytast og er verið að ná þeirri hugsun inn með nýjum lögum.

Lagt er upp með að leggja fram frumvarp með nýjum heildarlögum um bókhald þar sem rauðum þræði laganna sem byggist á pappírsbókhaldi er breytt í rafrænan. Það kallar á orðalagsbreytingar ákvæðanna, ný hugtök og skilgreiningar. Lagt verður til að geymsla bókhaldsgagna verði ekki bundin við geymslu gagna hérlendis sem endurspeglar pappírshugsunina að möppur með gögnum séu til staðar. Horft verði til þess raunveruleika í dag að bókhald er geymt á rafrænan hátt, oftast í skýjum. Þannig verði breytingin á þann veg að bókhald sé ávallt aðgengilegt án tafar fyrir yfirvöld en ábyrgð geymslu skuli vera hjá hinum bókhaldsskylda. Önnur ákvæði þar sem breyting hefur orðið á vegna tækniframfara vera skoðuð og tekin út og endurbætt en þar má t.d. nefna hugtakið frumrit ofl. Farið verður yfir stöðu skoðunarmanna en ábendingar hafa borist um að þetta sé falskt öryggi og verður það skoðað.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa viðskipta og markaða

atrn@atrn.is