Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.–31.8.2026

2

Í vinnslu

  • 1.9.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-150/2026

Birt: 17.8.2026

Fjöldi umsagna: 2

Áform um lagasetningu

Atvinnuvegaráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Áform um breytingu á lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum

Málsefni

Áformað er að gera breytingar á lögum nr. 8/1996 um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðing í tækni- og hönnunargreinum.

Nánari upplýsingar

Tilefni breytinganna er að einfalda stjórnsýslu og styðja við starfræna stefnu um þjónustu hins opinbera.

Í fyrsta lagi er að ræða um breytingu á framkvæmd laganna við veitingu starfsleyfa sérfæðinga í tækni- og hönnunargreinum. Breytingin felur í sér að framkvæmdin fari frá ráðuneytinu til sýslumanns. Ferlið við útgáfu leyfanna í núverandi lagaumhverfi er með þeim hætti að umsókn berst atvinnuvegaráðuneytinu í gegnum mínar síður Stjórnarráðsins. Ráðuneytið sendir umsóknirnar þá til umsagnar viðeigandi fagfélags, sem hefur tvo mánuði til að veita ráðuneytinu umsögn. Sé umsögnin jákvæð útbýr ráðuneytið leyfisbréf og gefur út reikning fyrir gjaldi sem þarf að greiða fyrir leyfisbréfið.

Sem hluti af verkefni um aukna stafvæðingu og einföldun hefur atvinnuvegaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið hafið undirbúning á því verkefni að framkvæmd laga nr. 8/1996 verði færð til sýslumanns. Í framhaldi af því og í samstarfi við sýslumann og Stafrænt Ísland verður unnið að því að stafvæða umsóknarferlið. Unnið verði að nánari greiningu á umfangi verkefna og tækifærum fyrir aukinni stafvæðingu og fjárhagsleg áhrif lagabreytinga metin.

Í öðru lagi er áformað að lögvernda starfstitilinn „borgarhönnuður“. Beiðni um löggildingu starfsheitisins barst ráðuneytinu frá starfandi borgarhönnuðum á Íslandi. Borgarhönnun hefur á undanförnum árum orðið mikilvægari þáttur í þróun byggðamála, skipulags, samgöngu- og umhverfismála, auk mótunar vistvænna og mannvænna rýma innan sveitarfélaga og opinberra stofnana. Ákvarðanir sem teknar eru á þessu sviði hafa víðtæk áhrif á dagleg líf borgarbúa. Lögverndun og löggilding starfstitilsins mun stuðla að skýrari faglegum viðmiðum og ábyrgð, auknu trausti í samstarfi við opinbera aðila, stofnanir og almenning og tryggingu fyrir fagmennsku og gæðum í verkefnum sem snerta lífsgæði borgarbúa og þróun byggða.

Samkvæmt núgildandi lögum er framkvæmd laga nr. 8/1996 hjá atvinnuvegaráðuneytinu og starfsheitið borgarhönnuður ekki lögverndað.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa viðskipta og markaða

atrn@atrn.is