Mál nr. S-149/2026
Birt: 12.8.2026
Fjöldi umsagna: 1
Drög að reglugerð
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Húsnæðis- og skipulagsmál
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að breytingu á reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, með síðari breytingum.
Þann 1. nóvember 2023 tóku gildi lög nr. 35/2023 um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010, sem fólu í sér innleiðingu heimildar til gerðar svonefnds raflínuskipulags, þ.e. til töku sameiginlegrar skipulagsákvörðunar þvert á sveitarfélagamörk vegna framkvæmdar í flutningskerfi raforku.
Meðfylgjandi reglugerðardrög fela í sér tillögur um breytingar á reglugerð um framkvæmdaleyfi til samræmis við framangreindar breytingar á skipulagslögum.
Reglugerðardrögin kveða jafnframt á um tilteknar aðrar nauðsynlegar breytingar á reglugerð um framkvæmdaleyfi, fyrst og fremst til að samræma ákvæði hennar nýjum lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, sem komu í stað laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, og laga um umhverfismat áætlana, nr. 105/2006. Einnig eru lagðar til breytingar til að tryggja samræmi í reglugerðinni við ákvæði laga nr. 59/2014 um breytingar á skipulagslögum. Loks eru lagðar til breytingar á reglugerðinni til samræmis við breytingar á heitum stjórnsýslustofnana.
Ekki er gert ráð fyrir að fyrirhugaðar reglugerðarbreytingar hafi í för með sér kostnaðaráhrif fyrir ríki, sveitarfélög eða atvinnulíf enda felur reglugerðin ekki í sér nýjar skyldur umfram það sem þegar leiðir af áðurnefndum lagabreytingum.
Tillagan er unnin af ráðuneytinu með fulltingi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Á undirbúningsstigi hefur ráðuneytið fundað með fulltrúum Landsnets og Sambands íslenskra sveitarfélaga og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem fram komu í því samráði.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála
frn@frn.is