Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 28.7.–11.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-145/2026

Birt: 28.7.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Drög að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir

Málsefni

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir.

Nánari upplýsingar

Í frumvarpinu er lögð til sameiginleg löggjöf um tóbaks- og nikótínvörur, auk tengdra vara. Ástæðan er sú að rétt eins og tóbaksvörur eru nikótínvörur ávanabindandi og skaðlegar heilsu og eiga því sambærileg rök við um báða þessa vöruflokka, sem og aðrar þær vörur sem hér um ræðir, þar á meðal jurtavörur til reykinga.

Til að auka skilvirkni og til samræmis við tillögur starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri eru lagðar til breytingar á eftirliti með tóbaks- og nikótínvörum en m.a. er lagt til að eftirlit með smásölu nikótínvara verði hjá ÁTVR sem geti þó falið Umhverfis- og orkustofnun, Matvælastofnun (MAST) eða sambærilegri eftirlitsstofnun, sem og faggiltum vottunaraðilum, tiltekna þætti þess eftirlits. Jafnframt er gert ráð fyrir að tilkynningar um nýjar vörur verði hjá ÁTVR og að eftirlit með banni við auglýsingum á bæði tóbaks- og nikótínvörum verði hjá Neytendastofu.

Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra verið falin heimild til að takmarka sölu nikótínvara sem innihalda bragðefni, einkum þeirra sem kunna að höfða til barna. Í lögum nr. 87/2018 um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur er nú þegar að finna slíka heimild hvað varðar rafrettur. Þá var með breytingarlögum nr. 110/2023 lagt bann við tóbaksvörum með einkennandi bragði og tekur bannið gildi 11. júní 2028.

Lagt er til að sömu reglur gildi um notkun sígarettna og rafrettna, svo og annarra tengdra vara. Þá er lagt til að fjarsala á nikótínvörum og jurtavörum til reykinga yfir landamæri verði óheimil með sama hætti og á tóbaksvörum, takmarka megi heimild til heimsendingar og netsölu innanlands á vörum samkvæmt frumvarpinu, framleiðsla slíkra vara verði leyfisskyld og söluaðilum verði skylt að spyrja kaupendur um skilríki. Í frumvarpinu er einnig skerpt á reglum um viðurlög.

Töluverðar hömlur verða á hvar nota má vörur samkvæmt frumvarpinu og er þar fylgt fordæmi gildandi löggjafar. Svo sem verið hefur verður nokkurt tillit tekið til hópa sem slíkt getur reynst sérlega íþyngjandi í ljósi aðstæðna þeirra þannig að þeim gefist svigrúm til reykinga umfram það sem ella væri. Er þar um að ræða heimilisfólk á hjúkrunar- og dvalarheimilum, sjúklinga á sjúkrahúsum samkvæmt nánara mati í reglugerð og fanga.

Gert er ráð fyrir skyldu til notkunar einsleitra umbúða um tóbaksvörur. Að öðru leyti verða umbúðir um vörur samkvæmt lögunum að fullnægja ströngum kröfum, þar á meðal um viðvörunarmyndir og viðvörunartexta. Jafnframt er lagt bann við umbúðum með texta eða myndmáli sem getur höfðað sérstaklega til barna eða ungmenna, m.a. með myndskreytingum eða slagorðum.

Enn fremur má nefna að í frumvarpinu er að finna ákvæði sem tryggja eiga rekjanlega tóbaksvara og að unnt sé að auðkenna þær en með það í huga er mælt fyrir um einkvæm auðkenni og þar til gerðan öryggisþátt sem þær skulu bera. Er hér um að ræða efnisatriði úr tilskipun 2014/40/ESB sem þegar er mælt fyrir um í gildandi tóbaksvarnalögum.

Sömuleiðis hefur frumvarpið að geyma ákvæði um hámarksmagn nikótíns í tóbaks- og nikótínvörum og hámarksmagn tjöru í reyktóbaki.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnsýslu

hrn@hrn.is