Til umsagnar
23.7.–20.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-144/2026
Birt: 23.7.2026
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Fyrirhugað er að gera breytingar á lögum um samræmda neyðarsvörun, nr. 40/2008, með það að markmiði að kveða skýrar á um hlutverk vaktstöðrvar samræmdrar neyðarsvörunar.
Með lögum um samræmda neyðarsvörun, nr. 40/2008, er m.a. kveðið á um hlutverk vaktstöðvar samræmdrar neyðarsvörunar (Neyðarlínunnar), réttindi og skyldur viðbragðsaðila og hvernig fara skuli með upplýsingar sem henni berast.
Mikilvægt er að viðbragðsaðilar og eftir atvikum aðrir sem málið varðar, geti með einföldum, skjótum og áreiðanlegum hætti aflað nauðsynlegra upplýsinga sem berast Neyðarlínunni vegna lögbundinna verkefna þeirra. Um nokkra hríð hefur verið ákall um að lögfesta ákvæði sem kveða með skýrum hætti á um hlutverk og heimildir Neyðarlínunnar til vinnslu og miðlunar upplýsinga. Tilefni lagabreytinganna er því að bæta skýrleika laganna um hlutverk Neyðarlínunnar ásamt því að að skerpa á heimildum Neyðarlínunnar til vinnslu og miðlunar upplýsinga sem henni berast til að taka af allan vafa um lögmæti vinnslunnar. Þar sem hlutverk og heimildir Neyðarlínunnar til vinnslu og miðlunar upplýsinga byggjast á framangreindum lögum sem og samningi Neyðarlínunnar við dómsmálaráðherra, sbr. 2. mgr. 8. gr. laganna, þarf að breyta þeim lögum til að eyða allri óvissu um vinnsluheimildir og hlutverk Neyðarlínunnar.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa löggæslumála
dmr@dmr.is