Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 22.7.–28.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-143/2026

Birt: 22.7.2026

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjölskyldumál

Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (útivistartími)

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á barnaverndarlögum, nr. 80/2002, er varðar útivistartíma barna.

Nánari upplýsingar

Efni frumvarpsins var áður kynnt sem hluti af drögum að frumvarpi til nýrra heildarlaga um barnavernd sem lagt var fram á 157. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Í samræmi við nefndarálit meiri hluta velferðarnefndar Alþingis er efnið nú kynnt í sérstöku frumvarpi og óskað eftir frekara samráði við börn og aðra hlutaðeigandi aðila um þennan afmarkaða en mikilvæga málaflokk sem snertir daglegt líf fjölskyldna í landinu.

Reglur um útivistartíma barna hafa að meginstefnu til staðið óbreyttar frá árinu 1992. Á þeim tíma hafa aðstæður barna, félagsleg samskipti og tómstundastarf breyst verulega, ekki síst með tilkomu stafræns umhverfis. Í samráði við börn hefur ítrekað komið fram ákall um meiri sveigjanleika og rýmri útivist í takt við aukinn þroska þeirra. Með frumvarpinu er stefnt að því að finna rétt jafnvægi á milli verndar- og forvarnarsjónarmiða annars vegar og réttinda, sjálfstæðis og lýðheilsu barna hins vegar, í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Í frumvarpinu eru lagðar til afmarkaðar breytingar á reglum um útivistartíma barna. Markmið breytinganna er að auka sveigjanleika og aðlaga reglurnar betur að mismunandi aldri og þroska barna og breyttum samfélagsháttum.

Helsta breytingin felst í því að börnum á miðstigi grunnskóla á aldrinum 10–12 ára verði heimilt að vera á almannafæri til kl. 21.00 yfir vetrartímann í stað kl. 20.00 samkvæmt gildandi lagareglum. Jafnframt er lagt til að yngsti aldurshópurinn taki til barna níu ára og yngri og að börn á aldrinum 13–16 ára megi áfram vera á almannafæri til kl. 22.00 en eftir þann tíma þurfi þau að vera í fylgd með fullorðnum eða á heimferð úr skóla-, íþrótta- eða frístundastarfi.

Þá er lagt til að samræma útivistartímann yfir sumartímann betur að skólaárinu þannig að hann taki breytingum frá 1. júní til 1. september ár hvert í stað 1. maí til 1. september samkvæmt gildandi lögum.

Ráðuneytið hvetur börn, hagaðila, fagfólk og aðra áhugasama um málefnið að kynna sér frumvarpsdrögin og senda inn umsögn. Umsagnarfrestur er til og með 28. ágúst.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (7)

Umsjónaraðili

mrn@mrn.is