Til umsagnar
23.7.–7.8.2026
Í vinnslu
8.8.–1.9.2026
Samráði lokið
2.9.2026
Mál nr. S-142/2026
Birt: 22.7.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Hagskýrslugerð og grunnskrár
Engin umsögn barst um áformin. Drög að frumvarpi til laga sem byggir á áformunum hafa verið kynnt til umsagnar í Samráðsgátt, sjá mál nr. S-158/2026.
Kynnt eru áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vegabréf nr. 136/1998.
Í júní 2023 voru samþykkt á Alþingi ný lög um nafnskírteini nr. 55/2023. Með lögunum var lagður grunnur fyrir útgáfu nýrra nafnskírteina sem standast þær kröfur sem gerðar eru til öruggra persónuskilríkja, meðal annars samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1157. Við samningu frumvarps til nýrra laga um nafnskírteini var m.a. horft til ákvæða laga um vegabréf nr. 136/1998. Aftur á móti liggur fyrir að eftir að lög um vegabréf voru samþykkt á Alþingi árið 1998 hefur ýmis þróun átt sér stað, má sem dæmi nefna auknar kröfur sem gerðar eru í lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Þá hefur framkvæmdin leitt í ljós að lagfæra þarf tiltekin ákvæði.
Við samningu frumvarps til nýrra laga um nafnskírteini var tekið mið af því sem betur þótti mega fara í lögum um vegabréf, en fyrir liggur að lagfæring á ákvæðum í síðarnefndu lögunum stendur eftir. Mikilvægt er að betra samræmi sé á milli þeirra laga sem varða útgáfu persónuskilríkja hér á landi, þ.e. vegabréfa og nafnskírteina, enda er slíkt samræmi til þess fallið að efla öryggi við útgáfu þeirra skilríkja sem um ræðir. Þykir því tímabært að leggja til nokkrar breytingar á lögum um vegabréf með það fyrir augum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa borgaralegra réttinda
dmr@dmr.is