Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 21.7.–17.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-141/2026

Birt: 21.7.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM)

Málsefni

Drög að frumvarpi til laga um innleiðingu á CBAM-reglugerð ESB þar sem sett er á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM-kerfi).

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er lögð til innleiðing á CBAM-reglugerð (ESB) 2023/956. Með reglugerðinni er sett á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM-kerfi) þar sem gjöld eru lögð á tilteknar vörur sem fluttar eru inn frá ríkjum utan EES-svæðisins.

CBAM kerfinu er ætlað að heimfæra gjöld á losun gróðurhúsalofttegunda, sambærileg þeim sem tíðkast undir ETS-kerfinu, á vörur sem framleiddar eru utan EES-svæðisins. Þannig gætir kerfið að samkeppnishæfni iðnaðar í Evrópu þegar endurgjaldslausum losunarheimildum fækkar innan ETS-kerfisins og á sama tíma er dregið úr hættu á kolefnisleka. Kolefnisleki á sér stað þegar losunarfrek starfsemi færist frá ríkjum sem búa að metnaðarfullu loftslagsregluverki, líkt og í gildi er á EES-svæðinu, til annarra ríkja þar sem lögbundinn kostnaður vegna losunar gróðurhúsalofttegunda er minni. Tilgangur CBAM-kerfisins er að jafna stöðu framleiðenda CBAM-vara innan og utan EES-svæðisins.

Fyrirtæki sem falla undir kerfið eru þau sem flytja inn 50 tonn eða meira af CBAM vörum árlega. Innan þessara 50 tonna getur verið ein eða fleiri tollskyld vara sem fellur undir CBAM.

Um er að ræða eftirfarandi vörur:

i) áburður,

ii) ál og álvörur,

iii) járn og stál,

iv) sement,

v) vetni og

vi) rafmagn.

Innflutningur á vetni og rafmagni er þó alltaf háður kaupum á CBAM-vottorðum óháð fyrrnefndum 50 tonna þröskuldi.

•CBAM-kerfið felur í sér skyldu til kaupa á CBAM-vottorðum vegna innflutnings fyrrgreindra CBAM-vara. Ferlið fer þannig fram að innflytjendum ber að kaupa svokölluð CBAM-vottorð og mun verð þeirra endurspegla verð ETS-losunarheimilda.

•Fjöldi CBAM-vottorða sem kaupa þarf fyrir innfluttar CBAM-vörur er háður losun við framleiðslu varanna, að frádregnu mögulegu kolefnisgjaldi sem þegar hefur verið greitt í upprunalandi vörunnar.

•Innflytjandi CBAM-vara þarf að fá samþykki sem CBAM-skýrslugjafi til þess að mega flytja vörurnar inn.

•CBAM-skýrslugjafi safnar upplýsingum um losun varanna sem hann flytur inn frá löndum utan ESB og gefur út og skráir í gagnagrunn svokallaða CBAM-yfirlýsingu um innflutninginn og losun hans. Innflytjandi jafnar svo losunina með því að kaupa og skila inn CBAM-vottorðum fyrir losuninni.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa loftslagsmála

iris.bjargmundsdottir@urn.is