Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 20.7.–4.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-140/2026

Birt: 20.7.2026

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjölskyldumál

Frumvarp til laga um barnavernd

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir endurskoðað frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið var áður lagt fram á 157. löggjafarþingi sem 580. mál en náði ekki fram að ganga. Það hefur nú verið endurskoðað með hliðsjón af þinglegri meðferð málsins, þar á meðal áliti og breytingartillögu meiri hluta velferðarnefndar Alþingis (sjá breytingartillögu við frumvarp til laga um barnavernd hér: https://www.althingi.is/altext/157/s/1346.html) og umsögnum sem bárust nefndinni.

Frumvarpsdrögin byggjast á umfangsmikilli stefnumótunarvinnu stjórnvalda og víðtæku samráði við fagfólk í málaflokknum, börn og aðra hagaðila. Með frumvarpinu er lagt til að gildandi barnaverndarlög, nr. 80/2002, verði leyst af hólmi með nýjum heildarlögum um barnavernd.

Með frumvarpinu eru lagðar til fjölmargar breytingar frá ákvæðum gildandi barnaverndarlaga. Aukin áhersla er lögð á sjálfstæð réttindi barna, barnvæna nálgun og þverfaglegt samstarf þeirra aðila sem veita börnum og fjölskyldum þeirra þjónustu. Réttindi barna við málsmeðferð barnaverndarmála eru styrkt, meðal annars með aukinni áherslu á að börn fái skipaðan talsmann. Þá er lagt til það nýmæli að mælt verði sérstaklega fyrir um rétt barna til heilbrigðisþjónustu meðan þau dveljast í vistunarúrræðum á vegum barnaverndaryfirvalda.

Frumvarpið er jafnframt mikilvægur liður í framkvæmd samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um börn með fjölþættan vanda. Samkvæmt samkomulaginu tekur ríkið aukna ábyrgð á uppbyggingu sérhæfðra vistunarúrræða og á að tryggja að lagaumhverfið samræmist þeirri framtíðarskipan sem samkomulagið grundvallast á.

Meðal þeirra breytinga sem gerðar hafa verið frá fyrri framlagningu frumvarpsins er að í ákvæði um alþjóðlegar skuldbindingar Íslands er bætt við tilvísun til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025. Jafnframt er áréttað að fatlað barn skuli njóta réttinda samkvæmt lögunum til fulls og jafns við önnur börn. Þá eru gerðar skýrari kröfur um að innan barnaverndarráðs sé fyrir hendi þekking á málefnum fatlaðra barna og heilbrigðisþjónustu barna, auk þekkingar á meðferð barnaverndarmála.

Ákvæði um samstarf og ábyrgð barnaverndaryfirvalda hafa einnig verið skýrð. Meðal annars er kveðið á um hvaða barnaverndarþjónusta fari með mál barns meðan leyst er úr ágreiningi um ábyrgð og að þjónusta skuli ávallt samþætt þegar barnaverndarþjónusta hefur tekið við umsjá eða forsjá barns. Þá er áréttað að barnaverndarþjónusta velji, í samráði við Barna- og fjölskyldustofu þegar við á, það vistunarúrræði sem best er talið henta þörfum barns hverju sinni.

Þá hafa verið gerðar breytingar á ákvæðum um þjónustu eftir að barn nær 18 ára aldri. Samkvæmt þeim er í undantekningartilvikum heimilt að framlengja stuðningsúrræði barnaverndar fram yfir 18 ára aldur en ekki er heimilt að framlengja tiltekna vistun sem felur í sér búsetu barns utan heimilis vegna fjölþættra stuðningsþarfa.

Í frumvarpinu er jafnframt fjallað ítarlega um beitingu þvingunar og annarra íþyngjandi ráðstafana gagnvart börnum sem vistuð eru utan heimilis í úrræðum á ábyrgð barnaverndaryfirvalda. Þar er meðal annars kveðið á um skilyrði fyrir takmörkun ferðafrelsis, leit á barni, haldlagningu muna, töku lífsýna, líkamlegri valdbeitingu, aðskilnaði barns frá öðrum börnum og vistun þess í sérstöku öryggisrými. Endurskoðuð ákvæði styrkja réttaröryggi barna, meðal annars með skýrari reglum um heilbrigðisþjónustu, tilkynningar, skráningu og kærurétt.

Ráðuneytið hvetur börn, hagaðila, fagfólk og aðra áhugasama um málefni barna til að kynna sér frumvarpsdrögin og senda inn umsögn. Umsagnarfrestur er til og með 4. ágúst.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (47)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

mrn@mrn.is