Til umsagnar
20.7.–10.8.2026
Í vinnslu
11.8.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-139/2026
Birt: 20.7.2026
Fjöldi umsagna: 3
Áform um lagasetningu
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Örorka og málefni fatlaðs fólks
Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er stefnt að því að bæta kjör lífeyrisþega og að auka skýrleika laganna með skýrari lagastoð fyrir greiðslu orlofs- og desemberuppbóta til lífeyrisþega.
Gert er ráð fyrir að í fyrirhuguðu frumvarpi verði lagt til að bætt verði við lög um almannatryggingar nýju ákvæði til bráðbirgða þar sem kveðið verði á um sérstaka eingreiðslu í desember fyrir árið 2026 til tekjulægstu greiðsluþeganna samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Þá er gert ráð fyrir að nýrri málsgrein verði bætt við nokkur ákvæði laganna þar sem kveðið verði á um heimild ráðherra til að ákveða í reglugerð að árlega séu greiddar orlofs- og desemberuppbætur til örorku-, hlutaörorku- og ellilífeyrisþega sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega. Jafnframt er gert ráð fyrir að ráðherra verði heimilt að setja fram nánari skilyrði í reglugerð.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa vinnumarkaðar og almannatrygginga
frn@frn.is