Til umsagnar
21.7.–18.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-138/2026
Birt: 21.7.2026
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Áformaður eru breytingar á lögum með það að markmiði að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni með sameiningu og fækkun lögregluembætta.
Í lok maí 2026 kynnti dómsmálaráðherra áform um skipulagsbreytingar lögregluembættanna, sem miða að því að fækka þeim úr níu í fjögur til fimm og að þau embætti sem sameinuð verði öðrum verði með aðstoðarlögreglustjóra í stað lögreglustjóra til þess að tryggja nálægð við ákvörðunartöku. Samhliða verði verkaskipting innan lögreglu tekin til skoðunar. Þá verði hvorki starfsfólki lögreglu né svæðisstöðvum fækkað við þessar breytingar.
Markmið áformanna eru að efla og styrkja lögregluna, ásamt því að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni í löggæslu. Með sameiningu og fækkun lögregluembætta gefst tækifæri til að efla lögregluna og gera hana betur í stakk búna til að sinna lögbundnum skyldum sínum, þar sem sameinuð embætti mynda stærri liðsheildir og hagkvæmari rekstrareiningar.
Sameinuð embætti eru í betri stöðu til þess að fást við sífellt umfangsmeiri, flóknari og kostnaðarsamari löggæsluverkefni, bæði innanlands og á alþjóðavísu, og að vinna að nauðsynlegum umbótum, faglegri samlegð og skilvirkni í störfum. Ljóst er að auknar kröfur til lögreglunnar um að tryggja almannaöryggi og verkefni á alþjóðavettvangi, kallar á aukið samstarf og samhæfingu innan lögreglunnar þannig að hún starfi sem ein heild. Miklu skiptir að fagleg samlegð og skilvirkni í störfum lögreglu verði efld og að fjárveitingar til lögreglu verði sem best nýttar, meðal annars þegar kemur að innkaupum, stafrænni þróun og ýmiss konar miðlægri þjónustu. Þá þykja áformin styrkja lögregluna við að annast daglega þjónustu við íbúa, samfélagslöggæslu og forvarnarstarf um land allt, ásamt því að bjóða upp á aukin tækifæri til starfsþróunar um land allt.
Til að fylgja áformunum eftir hefur dómsmálaráðherra verið að heimsækja öll lögregluembætti landsins með það að markmiði að kynna áformin, ræða við starfsfólk og hlusta á sjónarmið þess. Þá hafa áformin jafnframt verið rædd við samráðshóp, sem skipaður var af fulltrúum dómsmálaráðuneytisins, embættis ríkislögreglustjóra, Lögreglustjórafélagsins og Landssambands lögreglumanna. Gert er ráð fyrir að frekara samráði við önnur ráðuneyti og aðra haghafa við vinnslu frumvarpsins.
Áformin kalla á endurskoðun lögreglulaga nr. 90/1996 og eftir atvikum þeirrar löggjafar sem gildir um verkefni lögreglunnar, enda er fjöldi lögregluembætta lögfestur. Gert er ráð fyrir að frumvarp til breytinga á lögum verði lagt fyrir Alþingi á 158. löggjafarþingi 2026-2027. Í kjölfar lagabreytinga verður reglugerð nr. 1150/2014 um umdæmi lögreglustjóra endurskoðuð þar sem ákvæði hennar endurspegla núgildandi skipan lögregluembætta.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa löggæslumála
dmr@dmr.is