Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 21.7.–18.8.2026

2

Í vinnslu

  • 19.8.2026–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-137/2026

Birt: 21.7.2026

Fjöldi umsagna: 3

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Áform um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi

Málsefni

Fyrirhugaðar eru breytingar á lögum sem efla munu refsivernd gegn skipulagðri brotastarfsemi og styrkja rannsókn og saksókn slíkra brota.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið er liður í framkvæmd stefnu stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi, Öruggara Ísland, sem kynnt var í janúar 2026. Stefnan byggir á því mati að skipulögð brotastarfsemi hafi þróast hratt á undanförnum árum og einkennist í auknum mæli af alþjóðlegum tengslum, fjölþættri brotastarfsemi og verulegum áhrifum á öryggi samfélagsins, efnahagslíf og velferð. Markmið frumvarpsins er að tryggja að lagaumhverfið endurspegli þessa þróun og að stjórnvöld búi yfir fullnægjandi úrræðum til að fyrirbyggja, rannsaka og sækja til saka brot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi.

Frumvarpið felur í sér breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum. Meðal helstu breytinga sem eru til skoðunar er að skýra og rýmka skilgreiningu á skipulögðum brotahópum þannig að hún taki betur mið af starfsemi slíkra hópa í dag, lögfesta sérstakar refsihækkunarástæður þegar brot eru framin í starfsemi skipulagðra brotahópa eða þegar börn og ungmenni eru nýtt til brota, auk þess að endurskoða refsiramma eftir því sem tilefni er til. Þá er jafnframt fyrirhugað að efla heimildir til upptöku ólögmæts ávinnings af brotastarfsemi, meðal annars með því að lögfesta heimildir sem gera yfirvöldum kleift að gera eignir upptækar við tilteknar aðstæður þótt sakfelling vegna tiltekins frumafbrots liggi ekki fyrir.

Jafnframt er stefnt að breytingum á lögum um meðferð sakamála sem ætlað er að efla rannsóknarúrræði og tryggja skilvirkari rannsókn og saksókn umfangsmikilla og flókinna mála sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Þar er meðal annars horft til reglna um afhendingu rannsóknargagna til verjanda, tímalengd gæsluvarðhalds og framkvæmd tiltekinna rannsóknaraðgerða áður en dómsúrskurðar er aflað þegar brýn rannsóknarsjónarmið krefjast þess. Einnig eru fyrirhugaðar breytingar á lögreglulögum sem miða að því að efla afbrotavarnir, styrkja samhæfingu milli stjórnvalda og styrkja lagastoð fyrir notkun nýrrar tækni við löggæslu.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa alþjóðamála

dmr@dmr.is